Menning

Líf og fjör meðal guða og manna

Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar
Það var líf og fjör á opnun þriggja sýninga á Listasafni Árnesinga um helgina. Sendiherra Indlands R. Ravindra hélt opnunarræðu.
Það var líf og fjör á opnun þriggja sýninga á Listasafni Árnesinga um helgina. Sendiherra Indlands R. Ravindra hélt opnunarræðu. SAMSETT

Það var mikil gleði í Hveragerði á laugardaginn þegar þrjár nýjar sýningar opnuðu á Listasafni Árnesinga. Fjöldi fólks var á svæðinu og fjölbreyttar hugmyndir mættust undir einu þaki.

Sýningarnar sem opnuðu heita Meðal guða og manna: Íslenskir listamenn í Varanasi, Bær og Skírdreymi.

„Sendiherra Indlands R. Ravindra hélt opnunarræðu ásamt safnstjóra safnsins Kristínu Scheving. Sýningarstjórarnir Pari Stave og Daría Sól Andrews héldu einnig stuttar ræður í tilefni dagsins. Indverska sendiráðið bauð upp á veitingar sem og Matkráin sem styrkir allar sýningar safnsins með snittum,“ segir í fréttatilkynningu. 

Sýningarnar þrjár standa yfir þangað til í ágúst þannig að það verður nægur tími til að koma og upplifa og margt er að sjá. Alls sýna 24 listamenn verk sín í safninu um þessar mundir og þar á meðal eru tólf indverskir listamenn.

Það er ókeypis aðgangur í safnið og er það opið alla daga nema mánudaga fram á sumar. Út sumarið verður opið alla daga vikunnar. Hér má nálgast nánari upplýsingar um sýningununa. Að neðan má sjá vel valdar myndir frá opnunarteitinu: 

Listamenn meðal guða og manna ásamt sýningarstjóra.Listasafn Árnesinga
Fólk að spjalla um listina og lífið.Listasafn Árnesinga
Það var margt um manninn á opnuninni.Listasafn Árnesinga
Listamennirnir Einar Falur Ingólfsson og Sigurður Árni Sigurðsson.Listasafn Árnesinga
Listakonurnar Rúrí og Sigga Björg í góðum gír.Listasafn Árnesinga
Listunnendur grandskoðuðu verkin.Listasafn Árnesinga
Sigurður Árni og Þorsteinn J Vilhjálmsson.Listasafn Árnesinga
Martyna Hopsa og Kuba.Listasafn Árnesinga
Markús Þór Andrésson sýningarstjóri Listasafns Reykjavíkur, Ólöf K. Sigurðardóttir safnstjóri Listasafns Reykjavíkur, Dorothée Kirch markaðs- og þróunarstjóri Listasafns Íslands og leikarinn og listamaðurinn Sigurþór Heimsson.Listasafn Árnesinga
Kristín Scheving með Navneet Raman og indversku sendiherra hjónunum.Listasafn Árnesinga
Sendiherra Indlands, R. RavindraListasafn Árnesinga
Jóna Þorvaldsdóttir.Listasafn Árnesinga
Sam og Max ræða saman.Listasafn Árnesinga
Fólk í fjöri!Listasafn Árnesinga
Listunnendur á öllum aldri.Listasafn Árnesinga
Boðið var upp á indverskar veitingar.Listasafn Árnesinga
Listamenn í sal 4 með Steinunni Jónsdóttur og Daríu Sól Andrews.Listasafn Árnesinga





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.