Átta ára fangelsisvist staðfest Árni Sæberg og Jón Þór Stefánsson skrifa 6. febrúar 2025 15:10 Mohamad Kourani í Héraðsdómi Reykjaness á sínum tíma. Vísir Landsréttur hefur staðfest átta ára fangelsisdóm Mohamads Thors Jóhannessonar, áður Kourani. Hann var sakfelldur fyrir tilraun til manndráps með því að stinga mann í OK Market í mars í fyrra og fjölda annarra brota.
Landréttur kvað upp dóm í máli Kouranis upp úr klukkan 15.. Kourani var dæmdur í átta ára fangelsi í júlí í fyrra fyrir að reyna að ráða Mustafa Al Hamoodi, eiganda OK Market, af dögum með hnífi í mars síðastliðnum, sem og fyrir önnur brot, líkt og fyrir að hóta lögreglumanni og fjölskyldu hans lífláti, og kasta hlandi á fangaverði. Kourani og mál sem honum tengjast hafa verið mikið til umræðu síðan hann var fyrst nafngreindur í fjölmiðlum. Það var gert í frétt Vísis í apríl í fyrra. Þá hafði hann verið úrskurðaður í gæsluvarðhald fyrir stunguárásina í OK Market. Hefur valdið vandræðum víða Ofsóknir Kouranis á Helga Magnúsi Gunnarssyni, vararíkissaksóknara, hafa dregið dilk á eftir sér. Helgi Magnús sagði í viðtali við Vísi eftir að dómur gekk í héraði að margir fögnuðu því að Kourani væri kominn á bak við lás og slá. Ekki síst hann sjálfur enda hefði Kourani ofsótt hann um árabil. Þá sagði hann Kourani ýkt dæmi en Íslendingar væru í stórum stíl að flytja inn kúltur sem væri í mörgu frábrugðinn því sem þeir þekkja. „Það eina sem stoppar þá er hnefinn, valdbeiting. Ekki er alls staðar sú sama afstaða til laga og réttar og hjá okkur. En við verðum að sætta okkur við það.“ Þessi ummæli hans voru kærð til lögreglu af samtökunum Solaris, sem berjast fyrir hagsmunum flóttafólks. Sakamálarannsókn vegna ummælana er í fullum gangi, samkvæmt heimildum Vísis. Þá urðu ummælin til þess að Sigríður J. Friðjónsdóttir, ríkissaksóknari afþakkaði vinnuframlag Helga Magnúsar og því mætir hann ekki í vinnuna þessa dagana en heldur fullum launum. Starfsmannamál hjá Ríkissaksóknara voru það fyrsta sem nýr dómsmálaráðherra fékk í fangið og enn er unnið að lausn málsins í ráðuneytinu. Skipti um nafn Þá vakti Kourani mikla athygli og talsverða hneykslan þegar hann breytti nafni sínu í Mohamad Th. Jóhannesson. Hann var sagður hafa litið til fyrrverandi forseta Íslands, Guðna Th. Jóhannessonar, þegar hann valdi nafnið og því var tekið illa af ýmsum. Í samskiptum við Vísi, í gegnum verjanda hans, vildi Kourani ekki staðfesta að það hefði vakað fyrir honum. Hann teldi einfaldlega eðlilegt að taka upp íslenskt nafn og Thor Jóhannesson væri „eðlilegt nafn“.
Mál Mohamad Kourani Dómsmál Tengdar fréttir Sakamálin sem skóku þjóðina Gríðarlega mörg sakamál voru til umfjöllunar hér á landi árið 2024. Sjö manndrápsmál komu upp á árinu, þar sem samanlagt átta létu lífið. Af þessum átta voru þrjú mál þar sem barn lést. 28. desember 2024 07:15 „Þetta er farið að að bera meira keim af einelti en löglegri stjórnsýslu” Helgi Magnús Gunnarsson vararíkissaksóknari furðar sig á ákvörðun Sigríðar Friðjónsdóttur ríkissaksóknara að lýsa hann vanhæfan þrátt fyrir að ráðherra hafi í haust ekki orðið við beiðni hennar um að leysa hann frá störfum. Helgi Magnús segir þetta farið að líkjast einelti frekar en löglegri stjórnsýslu. Hann ætli að skoða sína möguleika en muni ekki taka ákvörðun um framhaldið fyrr en eftir áramót. 23. desember 2024 06:37 Kallar eftir sams konar úrræði og Breivik og árásarmaður hennar sæta Ingunn Björnsdóttir, dósent við Óslóarháskóla og brotaþoli fólskulegrar hnífstunguárás í sama skóla, segir íslenskt réttarkerfi ráðþrota þegar kemur að alvarlegum ofbeldismálum. Sá sem stakk hana sætir svokölluðu „forvaring“, refsiúrræði í Noregi sem heimilar yfirvöldum að halda afbrotamönnum í vistun eftir afplánun fangelsisdóms. Fjöldamorðinginn Anders Behring Breivik sætir sama úrræði. 9. nóvember 2024 11:19 Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Innlent „Hann hótaði að drepa okkur“ Innlent Sögðu Írisi hafa beðið sig um að lemja brotaþola Innlent Fleiri fréttir Sögðu Írisi hafa beðið sig um að lemja brotaþola Dómurinn skoðaður og farið yfir framhaldið í Bandaríkjunum Sé óásættanlegt að vændiskaupendur hafi sloppið með sekt „Hann hótaði að drepa okkur“ Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Lögreglumenn fari huldu höfði af ótta við ofbeldi Forvitinn minnihluti styggir bæjarstjórn: „Sláandi tölfræði“ Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Miðflokkurinn bætir við sig fylgi Skoða fæðingarorlofsmálin Dragi uppsagnirnar til baka Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Þrír handteknir fyrir rán Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ „Það er öllum ljóst að hann hefur frekar verið þeirra megin“ Fullyrða að Daði Már hafi logið að þinginu „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Kosningar í Bandaríkjunum og utanríkisráðherra ræðir Rússa Skipaður formaður 6. áfanga rammaáætlunar Reikna með þrettán milljarða afgangi á næsta ári Fluttur með björgunarskipi þegar þyrlan gat ekki lent vegna þoku Kynntu fjárhagsáætlun borgarinnar Sjá meira
Sakamálin sem skóku þjóðina Gríðarlega mörg sakamál voru til umfjöllunar hér á landi árið 2024. Sjö manndrápsmál komu upp á árinu, þar sem samanlagt átta létu lífið. Af þessum átta voru þrjú mál þar sem barn lést. 28. desember 2024 07:15
„Þetta er farið að að bera meira keim af einelti en löglegri stjórnsýslu” Helgi Magnús Gunnarsson vararíkissaksóknari furðar sig á ákvörðun Sigríðar Friðjónsdóttur ríkissaksóknara að lýsa hann vanhæfan þrátt fyrir að ráðherra hafi í haust ekki orðið við beiðni hennar um að leysa hann frá störfum. Helgi Magnús segir þetta farið að líkjast einelti frekar en löglegri stjórnsýslu. Hann ætli að skoða sína möguleika en muni ekki taka ákvörðun um framhaldið fyrr en eftir áramót. 23. desember 2024 06:37
Kallar eftir sams konar úrræði og Breivik og árásarmaður hennar sæta Ingunn Björnsdóttir, dósent við Óslóarháskóla og brotaþoli fólskulegrar hnífstunguárás í sama skóla, segir íslenskt réttarkerfi ráðþrota þegar kemur að alvarlegum ofbeldismálum. Sá sem stakk hana sætir svokölluðu „forvaring“, refsiúrræði í Noregi sem heimilar yfirvöldum að halda afbrotamönnum í vistun eftir afplánun fangelsisdóms. Fjöldamorðinginn Anders Behring Breivik sætir sama úrræði. 9. nóvember 2024 11:19