Innlent

Bein út­sending: Ríkis­sátta­semjari fer yfir innanhússtillöguna

Árni Sæberg og Heimir Már Pétursson skrifa
Ástráður Haraldsson er Ríkissáttasemjari.
Ástráður Haraldsson er Ríkissáttasemjari. Vísir/Vilhelm

Ástráður Haraldsson ríkissáttasemjari lagði nú klukkan fjögur fram innanhússtillögu að kjarasamningi í kjaradeilu kennara við ríki og sveitarfélög til að freista þess að höggva á þann algera hnút sem viðræðurnar eru komnar í. Ástráður mætir í beina útsendingu með Heimi Má Péturssyni fréttamanni í Pallborðinu á Vísi um klukkan fimm í dag.

Að óbreyttu hefjast verkfallsaðgerðir í völdum leik- og grunnskólum strax á mánudag en ef samninganefndir samþykkja innanhústillöguna verður aðgerðum væntanlega slegið á frest.

Í innanhústillögunni er að finna ýmis ákvæði sem koma til móts við kröfur kennara og hvernig á að vinna frekar að þróun mats á störfum þeirra. Ástráður fer yfir málið í beinni útsendingu, sem hefst um klukkan 17 og má sjá í spilaranum, sem birtist hér að neðan þegar nær dregur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×