Súrustu töpin í sögu strákanna okkar Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 30. janúar 2025 08:05 Íslenska handboltalandsliðið hefur því miður þurft að sætta sig við mörg svekkjandi töp á stórmótum síðustu ára og áratuga. Samsett Af nokkrum súrum og svekkjandi töpum strákanna okkar á stórmótum er eitt tap sem stendur upp úr. Vísir skoðaði þessi grátlegustu töp íslenska karlalandsliðsins í sögu HM, EM og ÓL.
Það var örugglega afar svekkjandi fyrir íslenskt handboltaáhugafólk að fylgjast með leikjunum í átta liða úrslitum enda voru þetta leikir þar sem íslenska landsliðið átti svo sannarlega að spila. Íslenska karlalandsliðið í handbolta er út leik á heimsmeistaramótinu í handbolta þrátt fyrir að hafa unnið fimm af sex leikjum sínum í mótinu. Tapið á móti Króatíu varð liðinu afar dýrkeypt og bætist í hóp súrustu tapleikja í sögu strákanna okkar. Vísir hefur lagst yfir sögu íslenska handboltalandsliðsins og fundið þessi töp sem þjóðin hefur grátið yfir. Þegar allt stefndi í stórkostlegan árangur getur eitt svekkjandi tap mölbrotið allar vonir og væntingar. Hér fyrir neðan má sjá þessa tapleiki sem svíða mest. Það vert að taka það fram að þetta er ekki tæmandi listi og aðeins mat undirritaðs á þessari stundu. Tapleikurinn á móti Króatíu er líka mjög ferskur í minni sem gæti brenglað eitthvað matið. Það breytir ekki því að þrír leikir skera sig nokkuð úr og það verður mikið að gerast til að þeir missi sætið sitt við toppinn. Leikurinn hræðilegi á móti Króötum á dögunum gerir aftur á móti tilkall að vera ofarlega á lista sem þessum en topp tíu listann má finna hér fyrir neðan. Ásgeir Orn Hallgrímsson og Kári Kristjánsson sjást hér gríðarlega svekktir eftir tapleikinn í London.Getty/ Jeff Gross 1) 8. ágúst 2012 í London Leikur á móti Ungverjalandi í átta liða úrslitum á Ólympíuleikunum í London Niðurstaða: 33-34 tap í tvíframlengdum leik Mest svekkjandi leikurinn í sögunni er örugglega tap í tvíframlengdum leik á móti Ungverjum í átta liða úrslitum á Ólympíuleikunum í London. Íslenska liðið var búið að vinna fimm fyrstu leiki sína á leikunum og var á góðri leið með að vinna til verðlauna á öðrum Ólympíuleikunum í röð. Viðtal og mynd af Ólafi Stefánssyni eftir leikinn.Timarit.is/Fréttablaðið Silfurliðið frá ÓL í Peking var enn í fullu fjöri og til viðbótar var Aron Pálmarsson kominn inn í liðið og orðinn einn besti handboltamaður heims. Snorri Steinn Guðjónsson fékk víti fjórtán sekúndum fyrir leikslok til að tryggja Íslandi sæti í undanúrslitaleiknum. Hann lét verja frá sér og það sem meira en Ungverjar fóru í sókn og tryggðu sér framlengingu. Þar fékk Ísland fleiri tækifæri til að tryggja sér sigur en það tókst ekki. „Það eru ekki til orð í orðabókinni til að lýsa vonbrigðunum. Hver og einn verður að finna það sjálfur með sér hvernig hann tekst á við að tapa einhverju. Einhverju góðu, fallegu og stórkostlegu sem maður nær svo ekki. Eitthvað sem maður er búinn að eltast við lengi – í mánuði og ár. Eftir að hafa sett allt í þetta kemur í ljós á síðustu metrunum að maður fær það ekki. Þá kemur eitthvað í mann sem ekki er hægt að lýsa. Vonandi upplifa fæstir þessa tilfinningu en kannski þurfa allir að upplifa svona lagað til að geta stækkað og vaxið,“ sagði Ólafur Stefánsson, fyrirliði liðsins við Fréttablaðið eftir leik. Grein í Fréttablaðinu um tapleikinn sára í átta liða úrslitum HM 2007.Timarit.is/Fréttablaðið 2) 30. janúar 2007 í Hamburg Leikur á móti Danmörku í átta liða úrslitum á heimsmeistaramótinu í Þýskalandi Niðurstaða: 41-42 tap í framlengdum leik Ísland var með frábært lið á HM í Þýskalandi 2007 sem strákarnir áttu síðan eftir að sanna á Ólympíuleikunum árið eftir. Það munaði ofboðslega litlu að liðinu tækist að komast í leik um verðlaun á HM 2007. Tapið á móti Dönum í framlengingu svíður örugglega enn hjá mörgum. Ísland var 41-40 yfir í framlengingunni en Danir tryggðu sér sigur með því að skora tvö síðustu mörk leiksins. Sigurmarkið kom á lokasekúndunni. „Okkur líður öllum hræðilega og það er ekki hægt að komast nær því að komast í undanúrslit en þetta. Að skjóta í stöng undir lok framlengingar og fá svo á sig mark. Vogun vinnur, vogun tapar og því verður ekki neitað að þetta eru svakaleg vonbrigði,“ sagði Snorri Steinn Guðjónsson við Fréttablaðið en hann skoraði fimmtán mörk í leiknum. „Barátta og vilji var frábært en vörnin var ömurleg og markvarslan var líka slök. Sóknin var samt góð. Ég er kannski svona vitlaus og hef ekkert vit á handbolta en mér finnst við vera miklu betri en Danirnir,“ sagði Guðjón Valur Sigurðsson svekktur við Fréttablaðið. Grein Morgunblaðsins um tapið á móti Ungverjum í átta liða úrslitum á HM 1997.Timarit.is/Morgunblaðið 3) 29. maí 1997 í Kumamoto Leikur á móti Ungverjalandi í átta liða úrslitum á heimsmeistaramótinu í Japan Niðurstaða: 25-26 tap. Það virðast vera örlög okkar að tapa mikilvægum leikjum á móti Ungverjum. Í dag tölum við um Ungverjagrýlu eins og Bogdan-liöið okkar talaði um Svígrýluna. Ungverjagrýlan fæddist í þessum leik á HM 1997. Íslenska liðið átti ótrúlegt mót og endaði í fimmta sæti sem er besti árangur liðsins á heimsmeistaramóti. Liðið vann bæði Spán og Egyptaland í leiknum um fimmta til áttunda sæti en Ungverjar töpuðu báðum sínum leikjum í undanúrslitum og leik um bronsið. Eina tapið hjá strákunum okkar á mótinu kom í þessum leik á móti Ungverjum. „Það var sárt að tapa og þá sérstaklega fyrir mótherjum, sem við vissum að við gætum lagt að velli. Þetta eru mikil vonbrigði, því við misstum af einstæðu tækifæri að komast í undanúrslit og leika um verðlaunasæti," sagði Geir Sveinsson, fyrirliði landsliðsins, við Morgunblaðið. „Ég hef áður sagt þegar vel gengur og leikir vinnast, þá styttist alltaf í tapleikinn. Því miður kom sá leikur gegn Ungverjum. Það var frábært að komast í átta liða úrslit, en súrt að komast ekki í undanúrslitin og í framhaldinu að leika um verðlaun. Það vantaði svo lítið uppá að okkur tækist það,“ sagði Þorbjörn Jensson, þjálfari íslenska liðsins, við Morgunblaðið. Ýmir Örn Gíslason og félagar í íslenska landsliðinu átti skelfilegan hálfleik á móti Króatíu og það varð þeim að falli.Vísir/Vilhelm 4) 24. janúar 2025 í Zagreb Leikur á móti Króatíu í milliriðli á heimsmeistaramótinu í Kóratíu Niðurstaða: 26-32 tap Það var ekki bara tapið sjálft heldur hversu stórt það var. Íslenska liðið mátti tapa með þremur mörkum en var aldrei nálægt því eftir hræðilegan fyrri hálfleik sem tapaðist 20-12. Það þýddi að íslenska liðið var undir innbyrðis á móti Króatíu og Egyptalandi og sat eftir þrátt fyrir að vinna fimm af sex leikjum sínum á mótinu. „Mér líður bara eins og eftir þungt högg. Þetta er erfitt. Þetta voru gríðarleg vonbrigði. Eftir góða leiki að ná ekki að fylgja því eftir. Að einn svona slakur hálfleikur geti verið svona dýr er leiðinlegt,“ segir Snorri Steinn Guðjónsson, landsliðsþjálfari karla í handbolta, í samtali við Vísi degi eftir slæmt tap fyrir Króatíu. Fréttablaðið var með vonbrigðamynd á forsíðu sinni daginn eftir leikinn.Timarit.is/Fréttablaðið 5) 2. febrúar 2006 í St. Gallen Leikur á móti Noregi í lokaleik milliriðils á Evrópumótinu í Sviss Niðurstaða: 33-36 tap Íslenska liðið átti möguleika á sæti i undanúrslitum með því að vinna Norðmenn, lélegasta lið milliriðilsins, í lokaleiknum og treysta á önnur úrslit. Rússar þurftu að tapa sem og þeir gerðu. Ísland þurfti síðan að vinna sem stærsta sigur. Á endanum tapaðist leikurinn þar sem einn leikmaður Norðmanna, Kjetil Strand, skoraði nítján mörk. Íslenska liðið sat eftir í riðlinum. „Vonbrigðin eru alveg rosaleg og ég hef í raun litlu við það að bæta,“ sagði hundsvekktur og sárþjáður fyrirliði Íslands, Ólafur Stefánsson, við Fréttablaðið eftir leikinn. 6) 9. mars 1964 í Bratislava Leikur á móti Ungverjalandi í lokaleik riðilsins á heimsmeistaramótinu i Tékkóslóvakíu Niðurstaða: 12-21 tap Íslenska liðið hafði unnið Egypta sannfærandi í fyrsta leik og fylgt því eftir með óvæntum 12-10 sigri á Svíum. Svíar unnu Ungverja með sjö mörkum og því mátti íslenska tapa leiknum en bara ekki of stórt. Staðan var 7-7 undir lok fyrri hálfleiksins en svo hrundi leikur Íslands. Ungverjar kláruðu leikinn á 14-5 spretti og fylgdu Svíum upp úr riðlinum en íslenska liðið sat eftir. Íslenska liðið hafði annars farið með stigin úr Svíaleiknum og átt frábæra möguleika á sæti í undanúrslitaleiknum. „Við höfðum einfaldlega ekki þrek til að leika þrjá leiki á fjórum dögum. Við fórum langt gegn Svíum á skapinu og stemmningunni en það tekur mikinn andlegan og líkamlegan toll að leik á skapinu,“ sagði Gunnlaugur Hjálmarsson í bókinni um Strákana okkar. Alexander Petersson og félagar náði besta árangri í sögu landsliðsins í Peking en urðu að sætta sig við tap í stærsta leik landsliðsferilsins.Getty/Vladimir Rys 7) 24. ágúst 2008 í Peking Leikur á móti Frakklandi í úrslitaleiknum á Ólympíuleikunu í Kína Niðurstaða: 23-28 tap Íslenska landsliðið komst í fyrsta og eina úrslitaleik sinn á stórmóti á ÓL í Peking fyrir rúmum sextán árum. Það var mikill sigur á komast svo langt og vera öruggir með fyrstu verðlaun Íslands á stórmóti. Frammistaðan var hins vegar vonbrigði því íslenska liðið átti fá svör gegn sterku liði Frakka. „Það eru auðvitað blendnar tilfinningar að hafa fengið silfur skömmu eftir að hafa tapað stærsta leik lífs síns. Þegar maður lítur til baka verður maður alltaf stoltur af þessu. Það var erfitt fram að verðlaunaafhendingu en ég hresstist þegar ég steig upp á pallinn. Það eru sárafáir íþróttamenn sem fá að upplifa þá tilfinningu. Að vera fyrsta íslenska handboltalandsliðið til að fara á pall á stórmóti og það á Ólympíuleikum er gæsahúð,“ sagði Snorri Steinn Guðjónsson, leikstjórnandi við Fréttablaðið. Dagblaðið Vísir fjallaði um leikinn með stórri svekkelsismynd af Guðjóni Val Sigurðssyni.Timarit.is/DV 8) 30. janúar 2003 í Caminha Leikur á móti Spáni í milliriðli á heimsmeistaramótinu í Portúgal Niðurstaða: 31-32 tap. Eftir ævintýrið á Evrópumótinu ári fyrr var íslenska liðið einum leik frá því að komast aftur í undanúrslit og nú á HM. Með því hefði liðið náð sínum besta árangri á HM og tryggt sig inn á sína fyrstu Ólympíuleika í tólf ár. Spánverjarnir voru sterkari í leiknum og sigurinn öruggari en úrslitin sína. Íslenska liðið skoraði þrjú síðustu mörk leiksins en tókst ekki að jafna. Spænska liðið tapaði undanúrslitaleiknum á móti verðandi meisturum Króata í framlengingu. „Undanúrslitaleikur á heimsmeistaramóti í handknattleik var það sem var í húfi að þessu sinni og það væri bara eitthvað alvarlegt að í okkar liði ef við værum ekki svekktir eftir eins marks tap í slíkum leik,“ sagði Guðjón Valur Sigurðsson við Morgunblaðið eftir leik. Morgunblaðið sló upp ummælum Geirs Sveinssonar daginn eftir.Timarit.is/Morgunblaðið 9) 6. ágúst 1992 í Granollers Leikur á móti Samveldinu í undanúrslitaleiknum á Ólympíuleikunum í Barcelona Niðurstaða: 19-23 tap. Fyrsti undanúrslitaleikur íslenska landsliðsins á stórmóti. Liðið var 16-15 yfir í seinni hálfleiknum en missti leikinn frá sér í lokin. Liðið tapaði síðan á móti Frökkum í leiknum um bronsið. „Eftir að hafa verið búinn að skoða Rússana í tvo daga fannst mér við eiga að eiga virkilega góða möguleika gegn þeim og þegar maður hugsar fljótt til baka held ég að við höfum kastað þessu frá okkur,“ sagði Geir Sveinsson við Morgunblaðið eftir leikinn. Íslensku strákarnir eru örugglega orðnir þreyttir á Ungverjagrýlunni sem hefur herjað á íslenska landsliðið í marga áratugi.Getty/Sven Hoppe 10) 14. janúar 2023 í Kristianstad Leikur á móti Ungverjalandi á heimsmeistaramótinu i Svíþjóð Niðurstaða: 28-30 tap. Þetta er tap sem minnir kannski mest á Króatíutapið í ár því þetta óþarfa tap í riðlinum átti eftir að hafa svo slæm áhrif á stöðu íslenska liðsins í restinni á mótinu. Íslenska liðið henti líka þessum leik frá sér því liðið var sex mörkum yfir þegar átján mínútur voru eftir. Í stað þess að fara með fullt hús í milliriðilinn sat íslenska liðið á endanum eftir í milliriðlinum á þessu tapi í innbyrðis leik á móti Ungverjum. „Mér líður hræðilega. Ég átta mig ekki almennilega á því hvernig þetta gerðist í seinni hálfleik. Mér finnst við oft lenda í þessari stöðu, þegar þeir eiga engin svör og við erum að keyra yfir þá en svo gefum við of mikið eftir. Svo stendur ekki steinn yfir steini í lokin. Við förum með dauðafæri og hleypum þeim alltof nálægt í sókninni. Allt sem hrunið gat hrundi og ég get ekki lýst því hvað ég er svekktur,“ sagði Bjarki Már Elísson við Vísi eftir leik. Íslensku landsliðsmennirnir byrjuðu HM 2011 frábærlega en tapið á móti Þýskalandi breytti öllu.Getty/Martin Rose 11. 22. janúar 2011 í Jönköping Leikur á móti Þýskalandi í milliriðli á heimsmeistaramótinu í Svíþjóð Niðurstaða: 24-27 tap. Eftir fimm sigra í fyrstu fimm leikjum sínum var íslenska liðið skotið niður á jörðina í fyrsta leik milliriðilsins. Þetta var eini sigur Þjóðverja í milliriðlinum en íslenska landsliðið varð þarna fyrir miklu áfalli þegar leit út fyrir að íslenska liðið væri að fara langt í mótinu. Íslenska liðið missti hreinlega taktinn og „mójóið“, tapaði restinni af leikjum sínum á HM og komast ekki áfram í undanúrslitin. „Nóttin eftir Þjóðverjaleikinn var löng og erfið. Ég er feginn að hún er búin. Ég hlakka til að takast á við Spánverjana. Efir svona leik eins og gegn Þýskalandi vill maður koma til baka. Við erum búnir að fara yfir Þjóðverjaleikinn og skoðuðum Spánverjana í framhaldinu. Við erum staðráðnir í að bæta fyrir leikinn gegn Þýskalandi, sem var okkar langslakasti leikur á þessu móti. Því miður kom sá leikur í þetta mikilvægum leik,“ sagði Guðmundur Guðmundsson, landsliðsþjálfari, við Fréttablaðið. Því miður þá töpuðust næstu leikir líka. Dagblaðið Vísis var ekkert að skafa af því daginn eftir.Timarit.is/DV 12) 16.maí 1995 í Laugardalshöll Leikur á móti Rússlandi í sextán liða úrslitum á heimsmeistaramótinu á Íslandi Niðurstaða: 12-25 tap. Það var ekki bara tapið á móti sterku rússnesku liðið heldur hvernig leikur íslenska liðsins hrundi í seinni hálfleik og það á heimavelli. Íslenska liðið var fyrir löngu farið á taugum á mótinu og tapað leikjum í riðlinum sem þýddi að mótherjarnir í sextán liða úrslitunum voru gríðarlega sterkir. Rússar voru bara tveimur mörkum yfir í byrjun seinni, 12-10, en breyttu stöðunni í 21-11. Niðurstaðan var fjögur íslensk mörk í seinni hálfleik og versta tap íslenska landsliðsins í sögu HM. Íslenska liðið var ekki líklegt til afreka eftir slaka frammistöðu í mótinu en svo vandræðalegt tap verður alltaf að vera með á svona lista. „Hvað er hægt að segja um svona leik, Þetta er einfaldlega „skandall" fyrir okkur. Við spiluðum mjög vel í fyrri hálfleik. Síðan í seinni hálfleik náðum við ekki að halda uppi neinum sóknarleik, hann klikkar algjörlega. Við skutum ekki á markið — vorum hræddir við það og þeir fengu bara að leika sér,“ sagði Sigurður Sveinsson, við Morgunblaðið. „Undirbúningurinn hefði ekki getað verið betri. Það er búið að gera allt fyrir okkur — kannski of mikið, ég veit það ekki. Sjálfstraustið virðist ekki vera til staðar,“ sagði Sigurður. Það var tákræn mynd á forsíðu íþróttakálfs Morgunblaðsins eftir tapið hræðilega á móti Rússum á heimavelli fyrir næstum því þrjátíu árum síðan.Timarit.is/Morgunblaðið
HM karla í handbolta 2025 Landslið karla í handbolta Mest lesið Segir hegðun Brynjars Karls „ekkert annað en ofbeldi“ Körfubolti Ýmislegt sem kom upp á: „Kornið sem fyllti mælinn“ Körfubolti Fórnaði sér fyrir strákaliðið Sport Segja sigurmark Portúgals ólöglegt: „Stór dómaramistök“ Handbolti Ósammála Alfreð: „Auðvitað er þetta bakslag“ Handbolti Bryðja töflur og spila á öðrum fæti fyrir Dag Handbolti Súrustu töpin í sögu strákanna okkar Handbolti „Fokking aumingjar“ Körfubolti Datt af hestbaki og er á batavegi: „Er rétt að skríða saman“ Körfubolti Enn bætast við feitir bitar: „Viss um að Tindastóll hugsar þetta öðruvísi núna“ Körfubolti Fleiri fréttir Ósammála Alfreð: „Auðvitað er þetta bakslag“ Oggi snýr aftur heim Bryðja töflur og spila á öðrum fæti fyrir Dag Segja sigurmark Portúgals ólöglegt: „Stór dómaramistök“ Súrustu töpin í sögu strákanna okkar Þórir ætlar að hlusta á hjartað en ekki strax Lærisveinar Alfreðs úr leik eftir framlengdan leik Anton tekur við kvennaliði Vals Danir flugu inn í undanúrslitin Dagur fyrstur Íslendinga til að fara með karlalið í undanúrslit á HM Hágrét af sorg þegar hann tók við viðurkenningunni Ósáttur bæjarstjóri gaf öllum frí til að styðja sveina Dags Báðu Dag að sýna tilfinningar: „Ég er glaður“ Sigurmark frá miðju og Dagur mætir Frökkum Sturluð endurkoma og Dagur í undanúrslit Strákarnir hans Arons kvöddu með sigri Segir að Viktor Gísli sé einn af þremur bestu markvörðum heims „Við getum bara verið fúlir“ Aðeins tvær þjóðir spiluðu hægar en Ísland á HM Fyrsta liðið sem situr eftir með átta stig Endaði með fjörutíu prósent markvörslu á HM Hefur verulegar áhyggjur af Hauki: „Þetta er eins og Fóstbræðraskets“ Viktor Gísli besti maður Íslands á HM HM í dag: Ferðalok og síðasti sundspretturinn Vill sjá breytingar á landsliðinu: „Aðeins að poppa þetta upp“ HSÍ planaði heimför fyrir Argentínuleikinn: „Finnst það frekar taktlaust“ Myndasyrpa frá súrsæta sigrinum á Argentínu Skýrsla Henrys: Endurtekið efni enn eitt árið Uppgjörið: Króatía - Slóvenía 29-26 | Dagur stýrði Króötum til sigurs og sendi strákana okkar heim Egyptaland í átta liða úrslit eftir bras í byrjun Sjá meira