Handbolti

Anton tekur við kvenna­liði Vals

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Anton Rúnarsson var lengi vel lykilmaður í liði Vals.
Anton Rúnarsson var lengi vel lykilmaður í liði Vals. vísir/bára

Anton Rúnarsson mun taka við þjálfun Íslandsmeistara Vals í Olís-deild kvenna að yfirstandandi tímabili loknu. Hann tekur við liðinu er núverandi þjálfari Ágúst Jóhannsson mun taka við karlaliði félagsins.

Frá þessu greinir Valur á samfélagsmiðlum sínum. Þar segir að: 

„Anton Rúnarsson þarf vart að kynna fyrir handboltaáhugafólki og þá sérstaklega ekki áhagendum Vals, hann er uppalinn í félaginu og er Valsari í húð og hár.“

Anton hefur þjálfað hjá liðinu til fjölda ára og er í dag yfirþjálfari handknattleiksdeildar, þjálfari yngri flokka sem og aðstoðarþjálfari meistaraflokks karla. 

„Við í stjórn handknattleiksdeildar erum himinlifandi með að Anton taki þetta mikilvæga þjálfarastarf að sér innan okkar félags. Anton er að taka við sigursælast liði landsins um þessar mundir og mun eitt af hans lykilhlutverkum vera að halda liðinu áfram á sigurbraut með sérstaka áherslu á að koma ungum, efnilegum og uppöldum valsstúlkum í fremstu röð,“sagði Jón Halldórsson formaður handknattleiksdeildar Vals um ráðninguna. 

Valur er ríkjandi Íslandsmeistari og trónir sem stendur á toppi Olís-deildar kvenna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×