Freyr óttast það versta eftir leiðindaatvik á æfingu Brann Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 29. janúar 2025 08:12 Niklas Jensen Wassberg er norskur unglingalandsliðsmaður og sést hér í leik á móti Hollandi með nítján ára landsliðinu. Getty/Soccrates/ Það voru ekki góðar fréttir sem komu af einni af fyrstu æfingum norska félagsins Brann undir stjórn Freys Alexanderssonar.
Einn efnilegasti leikmaður liðsins meiddist þá illa á hné. Niklas Jensen Wassberg er aðeins tvítugur en var á leiðinni til baka eftir að hafa meiðst á hné í apríl í fyrra. Staðarblöðin Bergens Tidende og Bergensavisen greina frá því að óttast er að Wassberg hafi slitið aftur krossband. Wassberg lenti ekki í samstuði en fann mikið til í hnénu eftir að hafa snúið sér. Hann haltraði af velli og fékk meðhöndlun. Wassberg var þó ekki að meiðast á sama hné. Nú var það hægra hnéð en hafði verið það vinstra í apríl 2024. „Þetta er ekki jákvætt því þetta lítur ekki vel út. Við vonum það besta en óttumst það versta,“ sagði Freyr Alexandersson við Bergens Tidende. Freyr tók við norska liðinu á dögunum en Brann endaði í öðru sæti í norsku deildinni í fyrra og ætlar sér mikið á komandi leiktíð. Niklas Jensen Wassberg spilar sem miðjumaður en hann er fæddur í júní 2004. Hann hafði leikið 28 leiki með Brann í efstu deild og 18 leiki með Brann í næstefstu deild fyrir tvítugsafmælið sitt. Wassberg byrjaði fyrstu þrjá leiki Brann á síðustu leiktíð áður en hann meiddist.
Norski boltinn Mest lesið Sjáðu þegar allt sauð upp úr í Kópavogi og glæsimark Sveins Íslenski boltinn Ólafur Ingi: „Mér skilst að hann hafi bara kýlt hann“ Íslenski boltinn Bjarni Jó hættur Íslenski boltinn Gætu orðið meistarar eftir vinnu á mánudaginn Íslenski boltinn Algjört bíó í Eyjum: Ótrúlegt klúður og tvö gul og rautt á sömu sekúndu Íslenski boltinn „Margt sem við þurfum að laga“ Körfubolti „Mikil framför en því miður ekki nóg“ Körfubolti KA-menn brotlentu í Garðabæ Handbolti Landsliðskonan ólétt og leggur skóna á hilluna Íslenski boltinn Uppgjörið: Valur - Grindavík 81-74 | Valur setti díselvélina í gang undir lokin Körfubolti Fleiri fréttir Gætu orðið meistarar eftir vinnu á mánudaginn Ólafur Ingi: „Mér skilst að hann hafi bara kýlt hann“ Sjáðu þegar allt sauð upp úr í Kópavogi og glæsimark Sveins Uppgjörið: Grindavík/Njarðvík - ÍBV 2-1| Grindavík/Njarðvík vann síðasta heimaleikinn á tímabilinu Uppgjörið: ÍBV - FH 3-1 | Tíu Eyjamenn náðu fyrsta sigri í þrjá mánuði Uppgjörið: Breiðablik - Víkingur 1-2 | Fjögur rauð í miklum hitaleik Algjört bíó í Eyjum: Ótrúlegt klúður og tvö gul og rautt á sömu sekúndu Landsliðskonan ólétt og leggur skóna á hilluna Segir að gagnrýni Martinez sé í baksýnisspeglinum Syndaaflausn Infantino: „Páfinn yrði himinlifandi“ Aftur vandræðagangur hjá Manchester United fyrir útileik gegn Leeds Orri hélt liðsfund án aðkomu Arnars Fyrirliði Chelsea undir hnífinn Bjarni Jó hættur Kjartan samþykkti erfiða áskorun: „Á dauða mínum átti ég von“ Skömmin sé nægileg refsing: „Það sem gerðist þetta kvöld er óásættanlegt“ Ingibjörg orðlaus: „Hversu heppinn er þessi litli strákur?“ Infantino baðst afsökunar en neitaði að svara fjölmiðlum Kvaddi Val og sló í gegn eftir fullyrðingar um lélegt hugarfar Fallegt Evrópukvöld fyrir Íslendingana Bournemouth nýtur lífsins á nýjum slóðum en Willum spilaði lítið Slátrarinn baðst afsökunar en fær sekt Mikael meiddur af velli í Belgíu Orri nálægt sigurmarki á 90 sekúndum Getafe búið að setja sig í samband við Sancho Kennir svindli Manchester City um að hafa verið rekinn Arnar um agabrot landsliðsmanna: „Mikil vonbrigði fyrir mig persónulega“ Vill draga Ronaldo aftur inn í landsliðið Hegðun erkifjenda þeirra ekki komið á óvart gegn Bayern München „Íslensk knattspyrna er að kveðja mjög góðan mann“ Sjá meira