Enski boltinn

Man. United tók annað árið í röð efni­legan leik­mann frá Arsenal

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Hinn efnilegi miðvörður Ayden Heaven er á förum frá Arsenal og mun semja í staðinn við Manchester United.
Hinn efnilegi miðvörður Ayden Heaven er á förum frá Arsenal og mun semja í staðinn við Manchester United. Getty/David Price

Stuðningsmenn Arsenal þurfa annað árið í röð að horfa á eftir efnilegum leikmanni yfir til Manchester United.

Í fyrra var mikið fjaðrafok í kringum það þegar hinn sextán ára gamli Chido Obi-Martin fór yfir til United. Nú berast fréttir af því að Ayden Heaven sé að semja við Manchester United.

Alveg eins og var með Obi-Martin þá hafnaði Heaven samningstilboði frá Arsenal.

Obi-Martin er framherji en Heaven er átján ára miðvörður.

Heaven var líka með tilboð frá þýska liðinu Eintracht Frankfurt en vildi frekar fara til United.

Heaven hefur þrisvar verið í leikmannahópi Arsenal á tímabilinu og spilaði sinn fyrsta deild í deildabikarleik á móti Colchester United í nóvember.

Hann hefur spilað með átján ára og nítján ára landsliði Englendinga.

Chido Obi-Martin er ári yngri, fæddur í lok nóvember 2007. Hann er danskur unglingalandsliðsmaður.

Obi-Martin hefur spilað fimm leiki með U18 liði Manchester United í vetur og skorað í þeim fimm mörk. Obi-Martin skoraði 32 mörk í aðeins 18 leikjum með U18 liði Arsenal á tímabilinu í fyrra.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×