Fótbolti

Fór að gráta þegar hann skoraði

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Joao Simoes átti mjög erfitt með að ráða við tilfinningarna sínar eftir að hann skoraði fyrir Sporting.
Joao Simoes átti mjög erfitt með að ráða við tilfinningarna sínar eftir að hann skoraði fyrir Sporting. Getty/Gualter Fatia

Ungur leikmaður í portúgalska fótboltanum sýndi miklar tilfinningar þegar hann opnaði markareikninginn sinn.

Joao Simoes er bara átján ára gamall og hefur verið að koma aðeins við sögu hjá Sporting Lissabon í vetur.

Honum hafði hins vegar ekki tekist að skora mark fyrr en um helgina.

Simoes kom þá inn á sem varamaður í leik Sporting á móti CD Nacional. bSimoes fékk ekki langan tíma því hann var settur inn á 89. mínútu. Mínútu síðar hafði hann hins vegar innsiglað 2-0 sigur Sporting.

Svo miklar voru tilfinningarnar hjá stráknum eftir markið að hann fór að gráta.

„Þetta er draumurinn minn en þetta er líka draumur allra strákanna í akademíunni sem eru í burtu frá foreldrum sínum og dreymir um að spila á þessum fallega leikvangi,“ sagði Joao Simoes.

„Ég sá það aldrei fyrir að ég myndi skora hér í kvöld eða svona snemma. Þegar boltinn fór í markið þá hugsaði ég um mömmu og pabba. Ég tileinka þeim þetta mark en einnig allri fjölskyldunni minni,“ sagði Simoes.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×