Enski boltinn

Njósnarar enskra stór­liða sáu Há­kon skína skært

Smári Jökull Jónsson skrifar
Hákon Arnar með boltann á Anfield í síðustu viku, hundeltur af Dominik Szoboszlai.
Hákon Arnar með boltann á Anfield í síðustu viku, hundeltur af Dominik Szoboszlai. Vísir/Getty

Hákon Arnar Haraldsson hefur vakið athygli fyrir frammistöðu sína með liði Lille á leiktíðinni. Í leik gegn Nice í frönsku deildinni á dögunum voru njósnarar enskra stórliða í stúkunni að fylgjast með.

Hákon Arnar hefur skorað fjögur mörk fyrir Lille á leiktíðinni en hann var frá vegna meiðsla um nokkurra vikna skeið fyrir áramót. Hann sneri hins vegar sterkur til baka og skoraði í leik gegn Nice fyrir tíu dögum síðan og spilaði afar vel í leik gegn Liverpool í Meistaradeildinni í síðustu viku.

Í dag greinir Daily Mail frá því að á umræddum leik Lille og Nice hafi yfirnjósnarar bæði Manchester United og Newcastle verið á vellinum. Þeir voru þar til að fylgjast með Kanadamanninum Jonathan David en sneru báðir aftur til Englands með jákvæða umsögn um Hákon Arnar.

Í leiknum gegn Liverpool nokkrum dögum síðar voru fulltrúar fleiri liða staddir á Anfield en þá var Hákon Arnar sagður hafa verið einn af bestu leikmönnum vallarins.

Lille keypti Skagamanninn knáa frá FCK í Danmörku fyrir einu og hálfu ári síðan og í frétt Tipsbladet um málið er sagt líklegt að forráðamenn danska liðsins bíði spenntir eftir mögulegum félagaskiptum Hákons Arnars til Englands þar sem endursöluákvæði sé að finna í samningi FCK og Lille. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×