Grjóthörð Díana spilaði ristarbrotin Sindri Sverrisson skrifar 21. janúar 2025 15:01 Díana Dögg Magnúsdóttir verður frá keppni næstu vikurnar en missir vonandi ekki af neinum landsleikjum. Vísir/EPA Díana Dögg Magnúsdóttir, landsliðskona í handbolta, verður frá keppni næstu vikurnar eftir að hafa ristarbrotnað í leik með HSG Blomberg-Lippe í Evrópudeildinni. Hún spilaði seinni hálfleikinn ristarbrotin.
Díana og stöllur hennar unnu afar torsóttan en góðan sigur gegn Mosonmagyaróvár í Ungverjalandi á sunnudaginn, 34-32. Díana meiddist undir lok fyrri hálfleiks og fékk aðhlynningu sjúkraþjálfara, en tókst einhvern veginn að harka af sér og spila seinni hálfleikinn. Hún skoraði þá til að mynda tvö mörk í röð til að koma HSG yfir um miðjan seinni hálfleikinn. Læknisskoðun eftir leik leiddi í ljós að ristarbein (e. metatarsal) hefði brotnað og því missir Díana af næstu leikjum HSG. „Þetta eru sorgartíðindi fyrir hana, okkur sem lið og félag, því hún hefur þróast í lykilleikmann á síðustu mánuðum og vikum,“ segir Steffen Birkner, þjálfari HSG, við heimasíðu félagsins. „Ég er mjög sorgmædd yfir því að geta ekki hjálpað liðinu á vellinum í næstu leikjum. En ég mun gera allt til þess að verða klár í slaginn eins fljótt og hægt er,“ segir Díana. Í samtali við handbolti.is segir Díana að mögulega þurfi hún að gangast undir aðgerð. Ákvörðun um það verði tekin í næstu viku en brotið „liggi ekkert allt of vel“.
Þýski handboltinn Mest lesið Bein útsending: Landsliðakeppni í Bakgarðshlaupi Sport Mögnuð Mari nýtti hverja einustu sekúndu Sport Kane brást illa við gríni Valsarans Körfubolti FH-ingar biðla til bareigenda, presta og trúarleiðtoga Íslenski boltinn Tár féllu í Bakgarðshlaupinu Sport Nokkuð viss um að Íslandsmetið verði slegið Sport Finnur til með Arnari Handbolti „Falleg stund að fá að keppa á móti litla bróður“ Fótbolti Kærkominn sigur KA/Þór Handbolti Tvö lið hætt við HM og Spánverjar hlaupa í appelsínugulri viðvörun Sport Fleiri fréttir Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Þungt tap Íslendingaliðsins Viktor öflugur í öruggum sigri Enn með fullt hús ÍBV vann toppslaginn Sjá meira