Viðskipti innlent

Jónína tekur við af Elísa­betu hjá BBA//Fjeldco

Atli Ísleifsson skrifar
Jónína Guðmundsdóttir.
Jónína Guðmundsdóttir.

Jónína Guðmundsdóttir hefur verið ráðin nýr framkvæmdastjóri lögmannsstofunnar BBA//Fjeldco. Hún tekur við stöðunni af Elísabetu Einarsdóttur og hefur þegar hafið störf. 

Í tilkynningu frá BBA//Fjeldco segir að Jónína, eða Nína, hafi víðtæka reynslu af stefnumótun, rekstri, mannauðsstjórnun og fyrirtækjamenningu en hún hafi síðast starfað sem framkvæmdastjóri mannauðs og menningar hjá flugfélaginu Play, þar sem hún hafi tekið þátt í að koma fyrirtækinu á fót og byggja það upp.

Nína er með BSc gráðu í viðskiptafræði frá Háskólanum á Akureyri og MSc gráðu í mannauðsstjórnun frá Strathclyde háskóla í Bretlandi.

„Ég er þakklát fyrir það tækifæri að fá að leiða starfsemi BBA//Fjeldco ásamt stjórnendum og eigendum stofunnar og vinna með öllu því frábæra fólki sem þar er. Hjá stofunni starfar gríðarlega öflugur hópur sem leggur sig allan fram við að þjónusta viðskiptavini okkar. Ég tek við góðu búi og hlakka til að takast á við verkefnin framundan” er haft eftir Nínu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×