Innlent

Öflug hrina í Bárðar­bungu og Íslandsbankasala í aug­sýn

Gunnar Reynir Valþórsson skrifar
Bylgjan hádegi

Í hádegisfréttum fjöllum við um jarðskjálftahrinuna sem reið yfir í Bárðabungu í morgun.

Við tölum við Magnús Tuma Guðmundsson jarðeðlisfræðing sem segir að hrinan í morgun minni um marggt á aðdraganda eldgossins í Holuhrauni árið 2014. 

Þá fjöllum við áfram um utankjörfundaratkvæðin sem skiluðu sér ekki í síðustu kosningum en ekki liggur fyrir hversu mörg slík atkvæði voru í pappakassa sem barst yfirkjörstjórn á Norðurlandi eystra ellefu dögum eftir kosningar.

Að auki fjöllum við um fyrirhugaða sölu á hlut ríkisins í Íslandsbanka sem fjármálaráðherra segir að til standi að klára á þessu ári.

Í íþróttapakka dagsins er það HM í handbolta sem verður í fyrirrúmi en mótið hefst í dag þótt Íslendingar mæti ekki til leiks fyrr en á fimmtudag.

 

Klippa: Hádegisfréttir 14. janúar 2025



Fleiri fréttir

Sjá meira


×