Lífið

Nicola Sturgeon orðin ein­hleyp

Oddur Ævar Gunnarsson skrifar
Nicola Sturgeon og Peter Murrell á góðri stundu.
Nicola Sturgeon og Peter Murrell á góðri stundu. EPA/ROBERT PERRY EPA/ROBERT PERRY

Fyrrverandi fyrsti ráðherra Skotlands Nicola Sturgeon er skilin við eiginmann sinn Peter Murrell. Þau höfðu verið par í tuttugu og tvö ár og hjón í fimmtán ár.

Sturgeon greinir sjálf frá skilnaðinum á samfélagsmiðlum. Í umfjöllun Sky kemur fram að þau Sturgeon og Murrell hafi fyrst kynnst í gegnum starf flokks þeirra Skoska þjóðarflokksins árið 1988. Þau hafi svo orðið par árið 2003 og loks gift sig í Glasgow árið 2010.

„Það er með sorg í hjarta sem ég staðfesti að ég og Peter höfum ákveðið að binda endi á hjónaband okkar,“ skrifar Sturgeon á samfélagsmiðilinn Instagram. Hún segir þau í raun hafa verið skilin í nokkurn tíma og að þeim hafi þótt kominn tími á að segja heiminum frá.

Vandræði með fjármálin

Sturgeon tók við sem leiðtogi Skoska þjóðarflokksins árið 2014 og leiddi flokkinn þar til í febrúar 2023. Murrell var framkvæmdastjóri flokksins frá 1999 og til 2023, þegar hann axlaði ábyrgð á því að hafa sagt ósatt um fjölda meðlima í flokknum í aðdraganda leiðtogakjörs innan hans þar sem Humza Yousaf bar sigur úr býtum.

Hann var í fyrra svo ákærður fyrir fjárdrátt hjá flokknum. Árið áður hafði Sturgeon verið handtekin vegna rannsóknar á fjármögnun og fjármálum flokksins. 

Málið er enn til rannsóknar en Sturgeon hefur neitað sök. Sturgeon og Murrell eignuðust engin börn en misstu fóstur árið 2011 og hafa verið opinská varðandi erfiðleikana sem fylgdu þeirri lífsreynslu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.