Fótbolti

Freyr einnig í við­tal og einn er­lendur

Valur Páll Eiríksson skrifar
Freyr Alexandersson var rekinn frá Kortrijk fyrir rúmri viku.
Freyr Alexandersson var rekinn frá Kortrijk fyrir rúmri viku. Getty/Nico Vereecken

Freyr Alexandersson, fyrrum stjóri Kortrijk í Belgíu, fer í starfsviðtal hjá KSÍ líkt og Arnar Gunnlaugsson. Þriðji aðilinn er erlendur.

Líkt og Vísir greindi frá fyrr í dag hefur stjórn Knattspyrnusambands Íslands hefur boðið þremur þjálfurum í viðtal um starf landsliðsþjálfara íslenska karlalandsliðsins í fótbolta.

Heimir Gunnlaugsson, formaður knattspyrnudeildar Víkings, staðfesti í samtali við Vísi að félagið hefði gefið grænt ljós á að Arnar fari í viðtal hjá stjórn KSÍ.

Heimildir Vísis herma að Freyr Alexandersson sé einnig á leið í viðtal hjá KSÍ, en Fótbolti.net greindi fyrst frá. Ekki náðist í Frey við gerð fréttarinnar.

Freyr sagði í viðtali við Vísi í síðustu viku að hann væri alltaf til í að eiga samtalið við KSÍ. Hann þekkir vel til innan sambandsins enda bæði sinnt starfi landsliðsþjálfara kvenna sem og aðstoðarlandsliðsþjálfara karla í stjóratíð Svíans Eriks Hamrén.

Þorvaldur Örlygsson, formaður KSÍ, sagði þá við Vísi að erlendur aðili hefði einnig verið boðaður í viðtal til stjórnar. Því má ganga út frá því að þriðji aðilinn sé af erlendu bergi brotinn.

Líklegast þykir að sá aðili sé Norðmaðurinn Per Mathias Högmo sem hefur verið orðaður við starfið.


Tengdar fréttir

Þjálfararáðning bíði líklega nýs árs

Þorvaldur Örlygsson, formaður Knattspyrnusambands Íslands, gerir ráð fyrir að nýr landsliðsþjálfari verði ekki ráðinn fyrr en eftir áramót. Enn eigi eftir að boða kandídata í viðtöl.

Fjöldi umsókna borist og áhugaverð nöfn á borðinu

Þorvaldur Örlygsson segir leit KSÍ að nýjum landsliðsþjálfara karla í fótbolta miða vel. Enn hafi engir fundir átt sér stað með mögulegum arftaka Åge Hareide en óformleg samtöl hafi átt sér stað. Hann lofar ekki nýjum þjálfara fyrir jól.

Arnar og Freyr ekki efstir á óska­lista Óskars Hrafns

Óskar Hrafn Þorvaldsson, þjálfari og yfirmaður fótboltamála hjá KR, sagði sína á skoðun á landsliðsþjálfaraleit KSÍ þegar hann var gestur í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X-inu í gær.

„Gætu gert hrikalega góða hluti með íslenska landsliðið“

Alfreð Finnbogason þekkir mjög vel til íslenska fótboltalandsliðsins enda einn markahæsti leikmaður þess frá upphafi. Hann á að baki 73 landsleiki og þrettán ár í landsliðinu og veit því hvaða kostum góður landsliðsþjálfari þarf að búa yfir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×