Fótbolti

Botnliðin eiga von og meistararnir geta fallið

Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar
Englandsmeistarar Manchester City hafa aðeins unnið einn af síðustu tólf leikjum sínum í öllum keppnum.
Englandsmeistarar Manchester City hafa aðeins unnið einn af síðustu tólf leikjum sínum í öllum keppnum. James Gill - Danehouse/Getty Images

Einu sinni í sögu ensku úrvalsdeildarinnar hefur það gerst að liðið sem situr í sjöunda sæti deildarinnar yfir jólahátíðina hefur fallið úr deild þeirra bestu. Englandsmeistarar Manchester City sitja í sjöunda sæti þessi jólin.

Í gær, aðfangadag, var farið yfir það hér á Vísi hversu oft það hefur gerst að liðið sem vermir toppsætið yfir jólin haldi dampi og vinni deildina. Þá var greint frá því að Liverpool sæti í toppsæti deildarinnar í sjöunda sinn yfir jólahátíðina, en hvað segir sagan okkur að verði um liðin sem sitja í fallsæti þegar hátíð ljóss og friðar gengur í garð?

Heimasíða ensku úrvalsdeildarinnar heldur vel utan um alla tölfræði í kringum deildina og þar er ekki undanskilin tölfræðin yfir það hvaða lið falla og hvaða lið verða Englandsmeistarar miðað við stöðu þeirra í deildinni á jóladag.

Eins og staðan er þessi jólin sitja Wolves, Ipswich og Southampton í fallsætunum þremur, en liðin þurfa þó ekki að örvænta alveg strax ef marka má tölfræði síðustu ára.

Aðeins þrisvar hefur það komið fyrir að öll þrjú liðin sem sitja í fallsæti yfir jólin hafi fallið. Árið 2002 féllu Derby, Leicester og Ipswich eftir að hafa verið í fallsæti á þessum tíma árs, 2013 féllu Wigan, QPR og Reading og 2021 féllu Fulham, WBA og Sheffield United.

Liðsmenn Southampton, sem sitja á botni deildarinnar með aðeins sex stig eftir 17 umferðir, gætu þó þurft að hafa meiri áhyggjur en aðrir. Aðeins fjórum sinnum hefur það gerst að liðið sem er á botninum yfir jólahátíðina hefur haldið sér uppi. Það gerðist tímabilin 2004-2005 (WBA), 2013-2014 (Sunderland), 2014-2015 (Leicester) og 2022-2023 (Wolves).

Southampton er í veseni.Catherine Ivill - AMA/Getty Images

Þá hefur það tvisvar gerst í sögu ensku úrvalsdeildarinnar að lið sem situr í efri hluta töflunnar um jólin hefur fallið. Tímabilið 2010-2011 féll Blackpool eftir að hafa verið í tíunda sæti um jólin og meira að segja hefur lið sem sat í sjöunda sæti um jólin, sætinu sem Englandsmeistarar Manchester City sitja í núna, fallið þegar Norwich náði því vafasama afreki 1994-1995.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×