Yfirgaf jólatónleika um borð í sjúkrabíl Tómas Arnar Þorláksson skrifar 21. desember 2024 20:00 Edda Ingibjörg Þórsdóttir var flutt í sjúkrabíl af jólatónleikum Emmsjé Gauta í gærkvöldi. Aðsend Tónlistarmaðurinn Emmsjé Gauti brýnir fyrir tónleikagestum að vera meðvitað um fólkið í kringum sig á tónleikum eftir að kona um þrítugt yfirgaf tónleika hans í gærkvöld um borð í sjúkrabíl.
Hin 31 árs Edda Ingibjörg Þórsdóttir var flutt í sjúkrabíl af jólatónleikum Emmsjé Gauta Julevenner í gærkvöld. Hún segist hafa fundið fyrir einhverjum ýta á bak sitt, þegar að mesti ærslagangurinn gekk yfir í einu af lokalagi tónleikanna með þeim afleiðingum að hún féll fram fyrir sig. Edda var allsgáð en missti um stund meðvitund við fallið og brotnaði á handarbaki. Þegar hún komst aftur til meðvitundar voru tónleikarnir búnir. Hún stóð í þriðju röð í stúkunni og skemmti sér vel á tónleikunum þar til hún féll fram fyrir sig, hrundi niður og hafnaði á handriðinu. Ingibjörg segir í samtali við Vísi að hún hafi verið flutt upp á sjúkrahús um klukkan eitt í nótt og hafi verið útskrifuð þaðan upp úr klukkan sjö í morgun. Edda eyddi allri nóttinni á sjúkrahúsi.Aðsend „Ánægður að þetta hafi ekki farið illa“ Tveir tónleikar Julevenner fara fram í kvöld en viðburðarhaldari og öryggisstjóri þakka fyrir að ekki hafi farið verr. „Við náttúrulega gripum strax inn í og erum með einn sjúkraflutningamann í vinnu þannig að þetta var afgreitt strax og hringt á sjúkrabíl. Hún meira að segja labbaði út í sjúkrabíl sjálf þannig að þetta endaði allt vel,“ segir Jens Andri Fylkisson, öryggisstjóri Julevenner. „Maður er bara ánægður að þetta hafi ekki farið illa. Ef fólk er að detta fram fyrir sig þá getur það endað illa en við heyrðum í henni. Við heyrðum í henni og auðvitað var hún kannski ekki sátt við fallið en hún var sátt yfir allt með tónleika,“ bætir Gauti Þeyr, viðburðarhaldari og tónlistarmaður við. Tónlistarmaðurinn Emmsjé Gauti.vísir/vilhelm Mikilvægt að vera meðvitaður um fólk í kringum sig Þeir biðla til gesta að sýna umburðarlyndi og fara varlega þó að hátíð fari í hönd. „Mér finnst þetta snúast fyrst og fremst um að fólk eigi að vera meðvitað um að það sé með annað fólk í kringum sig. Áfengi er sljóvgandi lyf þó svo að þessi stelpa hafi ekki verið undir áhrifum áfengis. Mér finnst líka nauðsynlegt að einhverju leyti að vakta fólkið í kringum okkur. Ef þú sérð eitthvað, að eitthvað sé einhvern veginn þá bara annað hvort að athuga það eða láta gæsluna vita. Þetta snýst allt um að öllum líði vel,“ segir Gauti.
Jól Mest lesið Sádar sagðir hafa sent fjórar viðvaranir Erlent Skutu niður eigin herþotu yfir Rauðahafi Erlent „Kurr í greininni í dag um að þetta skuli hvort tveggja vera á matseðlinum“ Innlent Yfirgaf jólatónleika í sjúkrabíl Innlent Færeyingar fagna tvennum göngum Erlent Þakklæti, auðmýkt, rok og söngur ríkisstjórnarinnar Innlent Íslenskur skurðlæknir hlúir að fólki í Magdeburg Erlent Stjórnarleiðtogar sitja fyrir svörum á Sprengisandi Innlent Mest skreytta jólahúsið í Hveragerði Innlent Breytingar á ráðuneytum taka ekki gildi fyrr en í mars Innlent Fleiri fréttir Vegir víða hálir á morgun og blint á fjallvegum Stjórnarleiðtogar sitja fyrir svörum á Sprengisandi „Afskaplega róleg“ nótt hjá lögreglumönnum Þakklæti, auðmýkt, rok og söngur ríkisstjórnarinnar „Kurr í greininni í dag um að þetta skuli hvort tveggja vera á matseðlinum“ Breytingar á ráðuneytum taka ekki gildi fyrr en í mars Mest skreytta jólahúsið í Hveragerði Yfirgaf jólatónleika í sjúkrabíl Ný ríkisstjórn Íslands: „Við erum orðnar vinkonur“ Allt um nýja ríkisstjórn Íslands í kvöldfréttum Krónan muni veikjast og allir halda að sér höndum Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB eigi síðar en 2027 „Mjög þunn súpa, lítið í henni“ Ætla að fjölga lögreglumönnum verulega Vilja ekki plast eða vír á leiðisskreytingar í kirkjugörðum Þetta eru ráðherrar nýrrar ríkisstjórnar Allir punktar stefnuyfirlýsingar ríkisstjórnarinnar Kallar eftir stillingu: „Menn eru saklausir uns sekt er sönnuð!“ Full tilhlökkunar að taka við nýju ráðuneyti „Það verður unnið fyrir heimilin í landinu“ Ný ríkisstjórn og áfall í Magdeburg „Ég held að þetta sé góður dagur fyrir þjóðina“ Áslaug Arna bjargaði kafnandi konu á veitingastað Tveir ungir á 140 kílómetra hraða Vaktin: Ný ríkisstjórn kynnt fyrir landanum Í eðli Sólveigar að vera með hnefann á lofti Hvetja Íslendinga á svæðinu til að láta vita af sér „Maður mun sakna þess mjög“ Engin breyting á hvalveiðileyfi því það sé glænýtt Ríkisstjórn sem þarfnist mikillar samhæfingar milli formannanna Sjá meira