Handbolti

Læri­sveinar Guð­jóns Vals úr leik í bikar­keppninni

Ágúst Orri Arnarson skrifar
Guðjón Valur Sigurðsson hefur náð frábærum árangri með Gummersbach en þarf að bíða örlítið lengur eftir bikarmeistaratitli. 
Guðjón Valur Sigurðsson hefur náð frábærum árangri með Gummersbach en þarf að bíða örlítið lengur eftir bikarmeistaratitli.  vísir / anton

Guðjón Valur Sigurðsson og lærisveinar hans í Gummerbach eru úr leik í þýsku bikarkeppninni í handbolta eftir 36-33 tap á útivelli gegn Kiel í átta liða úrslitum.

Gummersbach byrjaði mun betur og skoraði fyrstu fjögur mörk leiksins. Sú forysta hélst þó aðeins í um stundarfjórðung áður en heimamenn Kiel komu sér inn í leikinn og jöfnuðu.

Spennan hélst þar til um miðjan seinni hálfleik en þá tókst Kiel að taka afgerandi forystu sem liðið lét aldrei af hendi. Gummersbach minnkaði muninn mest niður í tvö mörk en komst ekki nær og er úr leik í bikarkeppninni þetta árið.

Elliði Snær Viðarsson skoraði fimm mörk fyrir Gummersbach.gummersbach

Emil Madsen hjá Kiel endaði markahæstur í leiknum með átta mörk. Elliði Snær Viðarsson skoraði fimm mörk fyrir Gummersbach og Teitur Örn Einarsson skoraði þrjú.

Kiel er sigursælasta lið í sögu bikarkeppninnar með tólf titla, nú síðast árið 2022. Gummersbach varð fimm sinnum bikarmeistari fyrstu tíu árin sem keppnin var haldin en hefur ekki hampað titlinum síðan árið 1985.

Mögulegir andstæðingar Kiel

Ásamt Kiel komust Balingen/Wetzlar og Rhein Neckar-Löwen áfram í undanúrslit. 

Síðar í kvöld fer svo fram síðasti leikur átta liða úrslita milli Melsungen og Flensburg. Arnar Freyr Arnarsson og Elvar Örn Jónsson eru leikmenn Melsungen.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×