Ísland leikur í G-riðli á HM ásamt Grænhöfðaeyjum, Kúbu og Slóveníu, og byrjar á leik við Grænhöfðaeyjar 16. janúar.
Einn af burðarásum íslenska liðsins síðustu ár, Ómar Ingi Magnússon, á við meiðsli að stríða og er því ekki í HM-hópnum. Í hans stað er Teitur Örn Einarsson með Viggó Kristjánssyni í stöðu hægri skyttu.
HM-hópinn má sjá hér að neðan:
HM-hópur Íslands 2025
Markverðir:
- Björgvin Páll Gústavsson, Valur 273 leikir/24 mörk
- Viktor Gísli Hallgrímsson, Wista Plock 60/1
Aðrir leikmenn:
- Arnar Freyr Arnarsson, Melsungen 100/101
- Aron Pálmarsson, Veszprém 177/674
- Bjarki Már Elísson, Veszprém 118/400
- Einar Þorsteinn Ólafsson, Fredericia 14/4
- Elliði Snær Viðarsson, Gummersbach 50/109
- Elvar Örn Jónsson, Melsungen 79/184
- Gísli Þorgeir Kristjánsson, Magdeburg 62/139
- Haukur Þrastarson, Dinamo Búkarest 35/51
- Janus Daði Smárason, Pick Szeged 86/141
- Óðinn Ríkharðsson, Kadetten Scaffhausen 43/131
- Orri Freyr Þorkelsson, Sporting 16/41
- Sigvaldi Björn Guðjónsson, Kolstad 76/214
- Teitur Örn Einarsson, Gummersbach, 36/36
- Þorsteinn Leó Gunnarsson, Porto 5/10
- Viggó Kristjánsson, Leipzig 59/165
- Ýmir Örn Gíslason, Göppingen 92/36
Heimilt er að velja 18 leikmenn fyrir mótið en 16 leikmenn verða svo valdir í hvern leik og auk þess er hægt að gera breytingar á hópnum.
Upptöku af fundinum í dag, þar sem Snorri kynnti hópinn og svaraði spurningum, má sjá hér að neðan.
Íslenski hópurinn kemur allur saman 2. janúar til æfinga Íslandi og spilar svo tvo vináttulandsleiki við Svíþjóð ytra. Fyrri leikurinn við Svía fer fram í Kristianstad 9. janúar og sá síðari í Malmö tveimur dögum síðar. Því næst eða 13. janúar halda strákarnir okkar til Zagreb, höfuðborgar Króatíu, þar sem allir leikir liðsins á HM fara fram.
Leikir Íslands í G-riðli:
16. janúar: Ísland - Grænhöfðaeyjar
18. janúar: Ísland - Kúba
20. janúar: Ísland - Slóvenía
Þrjú lið komast svo áfram í milliriðil með þremur liðum úr H-riðli (Egyptaland, Króatía, Argentína, Barein). Tvö lið úr milliriðlinum komast svo áfram í 8-liða úrslitin.
Leikdagar í milliriðli: 22. janúar, 24. janúar og 26. janúar.
Átta liða úrslit eru 28. janúar, undanúrslit 30. og 31. janúar, og úrslita- og bronsleikur 2. febrúar.