Fótbolti

Heimir og O'Shea glöddu börn á sjúkra­húsi

Sindri Sverrisson skrifar
John O'Shea og Heimir Hallgrímsson vöktu lukku á barnaspítala í Dublin og færðu börnum gjafir.
John O'Shea og Heimir Hallgrímsson vöktu lukku á barnaspítala í Dublin og færðu börnum gjafir. Skjáskot/Twitter

Heimir Hallgrímsson, landsliðsþjálfari Írlands í fótbolta, fór ásamt aðstoðarmanni sínum John O‘Shea og heimsótti Crumlin-barnaspítalann í Dublin þar sem þeir glöddu börnin með gjöfum fyrir jólin.

Írska knattspyrnusambandið deildi í gær myndbandi af heimsókninni sem sjá má hér að neðan.

Heimir og O‘Shea færðu börnunum meðal annars landsliðstreyjur og gleðin var svo sannarlega fölskvalaus hjá einni stelpunni þegar hún fékk að vita að hún yrði gestur á heimaleiknum mikilvæga við Búlgaríu, í Þjóðadeildarumspilinu í mars.

Heimir tók við írska landsliðinu síðasta sumar og fékk O'Shea sér til aðstoðar en O'Shea hafði áður verið aðalþjálfari í skamman tíma. O'Shea var einn þekktasti leikmaður Íra og lék 118 A-landsleiki auk þess að spila fyrir enska stórveldið Manchester United um árabil og vinna fimm Englandsmeistaratitla, Evrópumeistaratitil og fleira.

Sagði fólki að vera á tánum varðandi flug til Bandaríkjanna

Umspilið í Þjóðadeildinni er næsta landsliðsverkefni Heimis og O‘Shea en Írland þarf að vinna Búlgaríu í mars til að halda sér í B-deild, rétt eins og Ísland þarf að vinna Kósovó á sama tíma.

Írar fengu svo eins og aðrir að vita það á föstudag með hverjum þeir verða í riðli í undankeppni HM 2026. Írar drógust í riðil með Armeníu, Ungverjalandi og sigurliðinu úr einvígi Portúgals og Danmerkur sem mætast í 8-liða úrslitum Þjóðadeildarinnar. Undaanriðillinn verður spilaður frá september og fram í nóvember, rétt eins og í tilviki Íslands.

Irish Independent segir að Írar hefðu bæði getað verið heppnari og óheppnari, en hefur eftir Heimi að allt sé opið varðandi möguleikann á að komast á HM í Bandaríkjunum, Mexíkó og Kanada.

„Ef við viljum komast áfram þá verðum við að fá stig gegn þessum þjóðum sem eru hærra skrifaðar en við [Ungverjaland og Portúgal/Danmörk]. Við verðum tilbúnir í september. Ég ætla ekki að segja fólki að bóka flug til Bandaríkjanna en… byrjið að leita. Það er ekkert lið öruggt um efsta sætið í þessum riðli. Auðvitað er liðið úr efsta flokki líklegast en það endar ekki alltaf þannig,“ sagði Heimir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×