Fótbolti

Létu tímann renna út án þess að reyna að skora

Smári Jökull Jónsson skrifar
Patrick Drewes fékk kveikjara í höfuðið.
Patrick Drewes fékk kveikjara í höfuðið. Vísir/Getty

Gera þurfti langt hlé á leik Union Berlin og Bochum í þýsku úrvalsdeildinni í dag eftir að aðskotahlut var kastað í markvörð Bochum. Þegar leikmenn sneru aftur á völlinn létu þeir leikinn fjara út án þess að reyna að skora.

Komið var fram í uppbótartíma í leik Union Berlin og Bochum í dag þegar stuðningsmenn Berlínarliðsins köstuðu aðskotahlutum inn á völlinn. Einn þeirra endaði í höfðinu á Patrick Drewes markverði Bochum og var læknateymi Bochum strax kallað inn á völlinn.

Drewes virtist vankaður þegar hann gekk til búningsklefa ásamt öðrum leikmönnum liðanna en gert var tuttugu mínútna hlé á leiknum til að ákveða hvort halda ætti leik áfram.

Þegar liðin sneru aftur á völlinn fór útileikmaðurinn Philipp Hofmann í markið hjá Bochum sem var búið að framkvæma allar sínar skiptingar og gat því ekki skipt inn varamarkverði. 

Liðin höfðu hins vegar sannmælst um að láta þrjár mínúturnar sem eftir voru líða án þess að sækja á mark andstæðinganna. Leikmennirnir sendu boltann sín á milli og spjölluðu við andstæðingana á meðan tíminn leið og fjaraði leikurinn því einfaldlega út.

„Þjálfarinn okkar og þjálfarinn þeirra, þeir ræddu þetta og þjálfarinn okkar sagði okkur að við ættum bara að fara út á völl og klára leikinn. Það var það sem við gerðum,“ sagði Hoffman í viðtali við Sky eftir leik.

Sökudólgurinn handsamaður

Hann gaf í skyn að fleiri en einum hlut hefði verið kastað í markvörðinn Drewes.

„Þetta er óásættanlegt. Það skiptir engu máli hversu fast var kastað eða hvort það blæddi úr honum. Þetta er ekki viðeigandi.“

Lið Union Berlin verður refsað vegna atviksins og svo gæti farið að Bochum yrði dæmdur 3-0 sigur í leiknum. Félagið tilkynnti eftir leik að lögregla hefði handsamað þann sem talinn er hafa kastað aðskotahlutnum í Drewes.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×