Lífeyrissjóðir setja stefnuna á auknar fjárfestingar í erlendum hlutabréfum
![Lífeyrissjóðir fjárfesta að jafnaði ekki með beinum hætti í erlendum hlutafélögum heldur einkum í gegnum vísitölusjóði.](https://www.visir.is/i/9EF7ED81ECC7B5F19681917A37A8F83838E404C1605A0684D19B5B9653C5B7B6_713x0.jpg)
Þrír lífeyrissjóðir, sem eru samanlagt með um þúsund milljarða eignir í stýringu, setja allir stefnuna á að auka talsvert við vægi sitt í erlendum hlutabréfum á nýju ári á meðan minni áhersla verður á hlutabréfin hér heima. Fyrr á árinu færði Lífsverk stýringu á séreignarleiðum upp á tugi milljarða innanhús til sjóðsins samhliða því að setja stóraukna áherslu á fjárfestingar í erlendum hlutabréfum.
Tengdar fréttir
![](https://www.visir.is/i/222025769D0DD25ABB951077A0818B249B628129D46DC5504B25C60FC20DBDC6_308x200.jpg)
Minni áhersla á innlend hlutabréf og vilja auka vægi erlendra skuldabréfa
Tveir af allra stærstu lífeyrissjóðum landsins, langasamlega umsvifamestu fjárfestarnir á markaði, hafa sett sér þá stefnu fyrir komandi ár að draga heldur úr vægi innlendra hlutabréfa í eignasafni sínu á meðan áherslan verður meðal annars á að byggja upp stærri stöðu í erlendum skuldabréfum. Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins segir að eftir erfið ár og verðlækkanir á íslenskum hlutabréfamarkaði þá megi samt vænta þess að tækifæri skapist fyrir langtímafjárfesta og meiri líkur séu á góðri ávöxtun til lengri tíma litið.
![](https://www.visir.is/i/48CE6BE599D38CFC499C55D4729503EF7DB24378272E561F94BDA01FB5CB3499_308x200.jpg)
Gjaldeyriskaup lífeyrissjóða skreppa saman um fjórðung
Talsvert hefur hægt á kaupum lífeyrissjóðanna á erlendum gjaldeyri á undanförnum mánuðum samhliða meðal annars því að fjármagnsinnflæði í íslensk hlutabréf og ríkisskuldabréf var nánast hverfandi. Eftir að hafa veikst nokkuð í ágústmánuði, einkum þegar fjárfestar fóru að vinda ofan af framvirkum stöðum sínum, hefur gengi krónunnar styrkst undanfarið og er að nálgast að nýju gildið 150 á móti evrunni.