Erlent

Boða tíma „stöðug­leika og friðar“

Hólmfríður Gísladóttir skrifar
Sýrlenskur maður strýkur kettinum sínum er þeir bíða eftir því að komast frá Tyrklandi og inn í Sýrland.
Sýrlenskur maður strýkur kettinum sínum er þeir bíða eftir því að komast frá Tyrklandi og inn í Sýrland. AP/Metin Yoksu

Uppreisnarhópurinn Hayat Tahrir al-Sham (HTS) hefur skipað Mohammad al-Bashir í embætti forsætisráðherra Sýrlands. Mun hann sinna starfinu til 1. mars 2025.

HTS er öflugastur þeirra hópa sem unnu saman að því að koma stjórn Bashar al-Assad frá völdum og ráða nú ríkjum í Damaskus og öðrum borgum Sýrlands. 

Bashir er verkfræðingur og stjórnmálamaður sem hefur meðal annars starfað fyrir Frelsisstjórn HTS í Idlib. Hann sagði í stuttu ávarpi í gær að hann hefði átt fundi með öðrum ráðherrum í nýrri tímabundinni ríkisstjórn og fráfarandi valdhafa.

„Nú er tími fyrir fólk að njóta stöðugleika og friðar,“ sagði Bashir.

Stjórnvöld vestanhafs hafa sagt að viðurkenning þeirra á nýjum stjórnvöldum í Sýrlandi muni velta á því hvort og hvernig uppreisnarmenn uppfylla loforð um að allir hópar muni eiga rödd við stjórnarborðið.

Charles Lister, sérfræðingur í málefnum Sýrlands við Middle East Institute í Washington, segir það hins vegar ekki lofa góðu að svo virðist sem HTS sé eini hópurinn sem eigi aðkomu að myndun nýrrar ríkisstjórnar og vísar til „einræðistilburða“ hópsins í Idlib.

Bandaríkjamenn, Bretar og Sameinuðu þjóðirnar höfðu sett HTS á lista með hryðjuverkahópum áður en þeir komust til valda en stjórnvöld á Vesturlöndum eru sögð reiðubúin til að endurskoða það ef hópurinn heldur rétt á málum á næstu dögum, vikum og mánuðum.

Leiðtogi HTS, Ahmed al-Sharaa, einnig kallaður Abu Mohammed al-Jolani, sagði í viðtali við Sky News í gær að Sýrlendingar væru orðnir þreyttir á átökum og væru ekki á leið inn í nýtt stríð. Alþjóðasamfélagið hefði ekkert að óttast hvað þetta varðaði.

„Sýrland verður endurreist. Landið stefnir að framþróun og endurreisn. Að stöðugleika.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×