Viðskipti erlent

Verð á kaffi sögu­lega hátt

Sólrún Dögg Jósefsdóttir skrifar
Morgunbollinn verður sífellt dýrari.
Morgunbollinn verður sífellt dýrari. EPA

Verð á kaffi hefur tekið stökk og hefur aldrei verið hærra. Verðhækkanirnar má rekja til áætlana um minni uppskeru á kaffibaunum en undanfarin ár vegna mikilla þurrka og rigninga. Kaffiframleiðendur segjast aldrei hafa séð annað eins.

Í dag hækkaði verð á arabica kaffibaunum, sem er vinsælasta tegund kaffibauna, upp í 3,44 Bandaríkjadali á pund. Það jafngildir 479 krónum á hver 453 grömm. Í umfjöllun Guardian segir að verð á kaffibaununum hafi hækkað um 80 prósent á árinu. 

Þá hefur verð á robusta kaffibaunum, sem eru ódýrari og eru meðal annars notaðar í neskaffi, næstum tvöfaldast á árinu. Í lok nóvember var verð á slíkum kaffibaunum 5694 Bandaríkjadalir á tonn. 

Verðhækkanirnar eru til komnar vegna spáa um minni uppskeru á kaffibaunum í ár eftir að óveður reið yfir í Brasilíu og Víetnam, þar sem kaffibaunir eru ræktaðar í stórum stíl, og eyðilagði plantekrur. Þá heldur eftirspurn eftir kaffi áfram að aukast milli ára.

Svipuð staða vegna kakóbauna

Matvælaframleiðandinn Nestlé, sem á bæði vörumerkin Nescafé og Nespresso, tilkynnti í síðasta mánuði að verð á kaffi komi til með að hækka og skammtastærðir komi í leið til með að minnka. 

Verð á Nescafé hefur hækkað um fimmtán prósent á núliðnu ári á breskum markaði, að því er kemur fram í umfjöllun Guardian. 

Þá tilkynnti ítalski kaffiframleiðandinn Lavazza í sumar að verð á kaffi yrði áfram „mjög hátt“ og að ólíklega tæki það við sér fyrr en um mitt ár 2025. Giuseppe Lavazza forstjóri Lavazza sagðist þá aldrei hafa séð aðra eins verðhækkun og að framleiðandinn væri undir gríðarlegu álagi. 

Verðmet á kaffi var síðast slegið árið 1977 þegar snjókoma í Brasilíu olli því að plantekrur eyðilögðust. 

Auk kaffibauna hefur gríðarleg verðhækkun orðið á kakói, hráefninu sem súkkulaði er unnið úr. Íslendingar hafa þegar þurft að bera hallann af þeirri verðhækkun en verð á súkkulaði hækkaði um 123 prósent á einu ári. 


Tengdar fréttir

Konfektið í hæstu hæðum

Iceland verslunarkeðjan hækkar verðlag mest allra matvöruverslanna hér á landi milli ára eða um tíu prósent. Hástökkvari meðal birgja er súkkulaðiframleiðandinn Nói Síríus. Verkefnastjóri hjá ASÍ segir að þó vöruverð hafi hækkað ofsalega síðustu ár sé með skynsemi hægt að gera þolanleg innkaup. 

Súkkulaðið verði dýrara hjá öllum um páskana

Pétur Thor Gunnarsson, framkvæmdastjóri Freyju og Atli Einarsson, viðskiptastjóri Góu-Lindu, segja von á svipuðum verðhækkunum hjá þeim og hjá Nóa Síríus. Neytendur muni finna fyrir þeim um til dæmis páskana. Þeir fóru yfir alls kyns súkkulaðitengt í Bítinu á Bylgjunni í morgun.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×