Sport

Kol­beinn enn ósigraður: „Hann þurfti bara eitt högg til að finna að hann vildi ekki vera þarna“

Ágúst Orri Arnarson skrifar
Kolbeinn Kristinsson mun líklega vera í efstu fimmtíu sætum heimslistans næst þegar hann er uppfærður.
Kolbeinn Kristinsson mun líklega vera í efstu fimmtíu sætum heimslistans næst þegar hann er uppfærður.

Kolbeinn Kristinsson er enn ósigraður sem atvinnumaður í hnefaleikum. Hann fagnaði sautjánda sigrinum í gær með tæknilegu rothöggi í fyrstu lotu gegn Piotr Cwik.

Sigurinn var afskaplega öruggur og mun líklega koma Kolbeini í efstu fimmtíu sæti heimslistans í þungavigtarflokki.

Bardagakvöldið fór fram í Vínarborg og var um að ræða þriðja bardaga Kolbeins á árinu.

Andstæðingur hans, Piotr, hafði unnið átta bardaga í röð fyrir þennan en var fljótt sigraður af hinum ógnarsterka Íslendingi.

„Ég smellhitti hann um miðja fyrstu lotu og braut nefið. Stuttu eftir það reyndi hann að slá eitthvað og sagðist hafa brotið á sér höndina. Hann þurfti bara eitt högg til að finna að hann vildi ekki vera þarna,“ sagði Kolbeinn um sigurinn.

Box



Fleiri fréttir

Sjá meira


×