Skórnir voru seldir af uppboðsfyrirtækinu Heritage Auctions, fyrir hönd eigandans Michael Shaw, fyrir 28 milljónir Bandaríkjadala, um 3,875 milljarða íslenskra króna, nærri þrefalt meira en áætlað var. Skóparið er eitt af fjórum pörum sem Garland klæddist við gerð Galdrakarlsins í Oz.
Upphæðin er hæsta fjárhæð sem hefur verið varið á uppboði á muni úr skemmtanabransanum að sögn uppboðshússins. Fyrri methafi var hvíti neðanjarðarlestar-kjóll Marilyn Monroe, sem hún klæddist í myndinni The Seven Year Itch árið 1955, sem seldist árið 2011 fyrir 5,52 milljónir Bandaríkjadala.
Endanlegt verð á skónum, með sköttum og gjöldum, var 32,5 milljónir Bandaríkjadala, tæplega 4,5 milljarðar íslenskra króna. Á uppboðinu voru fleiri gripir úr Galdrakarlinum í Oz boðnir upp, þar á meðal nornahattur illu nornarinnar úr vestri sem seldist á þrjár milljónir Bandaríkjadala.
Skórnir endurheimtir þrettán árum eftir þjófnaðinn
Fyrir utan það að vera frægustu skór kvikmyndasögunnar á þetta tiltekna skópar nokkuð merkilega sögu. Fyrrnefndur Michael Shaw keypti skóna árið 1970 og lánaði þá til Judy Garland-safnsins í Grand Rapids í Minnesota, árið 2005. Þeir voru ekki búnir að vera lengi til sýnist þegar þeim var stolið 27. ágúst 2005.

Þrettán árum síðar, í júní 2018, tókst Alríkislögreglunni (FBI) að hafa upp á skónum í Minneapolis eftir umfangsmiklar aðgerðir í Grand Rapids.
Það sem kom lögreglunni á sporið var maður sem hafði samband við tryggingafyrirtækið sem tryggði skóna og sagðist geta komið þeim til skila í skiptum fyrir greiðslu. Hinn 76 ára Terry Martin var á endanum handtekinn og játaði hann að hafa stolið skónum.
Sjá einnig: Skór Dóróteu fundnir eftir þrettán ár
Gamall samverkamaður Martin hafði sagt honum að skórnir hlytu að vera skreyttir með raunverulegum gimsteinum, þar sem þeir voru tryggðir á milljón dala. Tíu ár voru þá liðin frá því Martin hafði síðast verið í fangelsi og reyndist freistingin of mikil, samkvæmt verjanda hans.

Martin notaði hamar við að brjóta sýningarkassa sem skórnir voru í og flúði með þá. Þegar hann reyndi að taka demantana af skónum komst hann að því að það væru engir demantar á þeim, bara pallíettur. Aðeins tveimur sólarhringum eftir að hafa stolið skónum losaði Martin sig við þá.
Sökum veikinda sinna var Martin ekki dæmdur í fangelsi og þurfti einungis að greiða safninu skaðabætur upp á 23.500 dali. Dómarinn tók þó fram að við eðlilegar kringumstæður hefði hann dæmt Martin í tíu ára fangelsi.
Annar maður ákærður
Nokkrum mánuðum eftir dómsúrskurðinn, í mars 2024, var annar maður, hinn 76 ára Jerry Hal Saliterman, einnig ákærður vegna þjófnaðarins.
Hann var ekki aðeins sakaður um þjófnað heldur einnig fyrir að reyna að hafa áhrif á vitni en hann hótaði að leka kynlífsmyndbandi af konu sem vissi af þjófnaðinum. Ekki kom fram í dómsskjölum eða fréttaflutningi um ákæruna hvort Martin og Saliterman tengdust eða hefðu unnið saman.

Svo virðist sem enn eigi eftir að dæma í málinu. Rétt eins og Martin notar Saliterman hjólastól og súrefniskút og því spurning hvort hann sé nægilega hraustur til að sitja í fangelsi.