Fótbolti

LA Galaxy MLS-meistari í sjötta sinn

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Los Angeles Galaxy vann í nótt sinn fyrsta MLS-titil í áratug.
Los Angeles Galaxy vann í nótt sinn fyrsta MLS-titil í áratug. getty/Shaun Clark

Úrslitaleikur MLS-deildarinnar í fótbolta fór fram í nótt. Þar hafði Los Angeles Galaxy betur gegn New York Red Bulls, 2-1.

Þetta er í fyrsta sinn sem lið frá fjölmennustu borgum Bandaríkjanna mætast í úrslitum MLS.

Leikurinn, sem fór fram á heimavelli, LA Galaxy, byrjaði mjög fjörlega en öll þrjú mörkin komu á fyrstu 28 mínútunum.

Joseph Paintsil kom heimamönnum yfir á 9. mínútu og fjórum mínútum síðar tvöfaldaði Dejan Joveljic forskotið.

Sean Nealis, varnarmaður New York, var nálægt því að skora sjálfsmark skömmu síðar en skoraði svo í rétt mark á 28. mínútu og minnkaði muninn í 2-1.

Bæði lið fengu sín færi til að bæta við mörkum það sem eftir lifði leiks en þau urðu ekki fleiri og LA Galaxy fagnaði sigri, 2-1.

Þetta er í sjötta sinn sem LA Galaxy verður MLS-meistari. Liðið er það sigursælasta í 29 ára sögu deildarinnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×