Fótbolti

Jón Dagur tekinn af velli í hálf­leik

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Jón Dagur Þorsteinsson og félagar í Herthu Berlin sitja í 10. sæti þýsku B-deildarinnar.
Jón Dagur Þorsteinsson og félagar í Herthu Berlin sitja í 10. sæti þýsku B-deildarinnar. getty/Soeren Stache

Hertha Berlin, lið landsliðsmannsins Jóns Dags Þorsteinssonar, tapaði fyrir Greuther Fürth, 2-1, í þýsku B-deildinni í fótbolta í dag.

Jón Dagur var í byrjunarliði Herthu Berlin en var tekinn af velli í hálfleik. Þá var staðan 1-1.

Heimamenn komust yfir strax á 5. mínútu með marki Ibrahims Maza en Noel Futkeu jafnaði sjö mínútum fyrir hálfleik. Hann tryggði Greuther Fürth svo sigurinn þegar hann skoraði annað mark sitt á 55. mínútu.

Hertha Berlin hefur tapað þremur af síðustu fimm leikjum sínum og er í 10. sæti deildarinnar með 21 stig eftir fimmtán leiki.

Jón Dagur gekk í raðir Herthu Berlin frá Leuven í Belgíu fyrir tímabilið. Hann hefur leikið ellefu deildarleiki fyrir Berlínarliðið í vetur en ekki enn tekist að skora.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×