Fótbolti

Hákon skoraði í sigri Lille

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Hákon Arnar Haraldsson er kominn á blað í frönsku úrvalsdeildinni.
Hákon Arnar Haraldsson er kominn á blað í frönsku úrvalsdeildinni. getty/Geert van Erven

Lille vann 3-1 sigur á Brest í frönsku úrvalsdeildinni í fótbolta í kvöld. Hákon Arnar Haraldsson var á skotskónum í liði heimamanna.

Hákon, sem er nýkominn til baka eftir meiðsli, fékk tækifæri í byrjunarliði Lille og nýtti það heldur betur vel.

Mínútu fyrir hálfleik skoraði Skagamaðurinn og kom Lille í 2-0 eftir sendingu frá Jonathan David. Þetta var fyrsta mark Hákons á tímabilinu.

David var í miklu stuði í leiknum í kvöld en hann skoraði fyrsta og þriðja mark Lille. Hann er markahæstur í frönsku úrvalsdeildinni með ellefu mörk.

Lille er í 3. sæti deildarinnar með 26 stig eftir fjórtán leiki.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×