Útgáfa hvalveiðileyfa er samfélagslegt mein Micah Garen skrifar 6. desember 2024 17:00 Er til betra dæmi um spillingu Bjarna Benediktssonar og misheppnaðrar ríkisstjórnar hans en þá ákvörðun hans á síðustu stundu að gefa út hvalveiðileyfi á leiðinni út um dyrnar? Það var ekki nóg að Bjarni hafi verið afhjúpaður í hneykslismáli þar sem hann skipaði Jón Gunnarsson, vin Kristjáns Loftssonar hvalveiðimanns, sem fulltrúa í ráðuneytið til að gefa út hvalveiðileyfi í skiptum fyrir sæti á lista í kosningunum. Það var ekki nóg að hann ætti í skýrum hagsmunaárekstri við fjölskyldumeðlim sem tengist Kristjáni Loftssyni. Það var ekki nóg að hann og flokkur hans biðu niðurlægjandi ósigur í þingkosningunum. Þrátt fyrir allt þetta allt saman tók Bjarni Benediktsson þá ákvörðun að gefa út hvalveiðileyfi handa vinum sínum, rétt áður en hann missir ráðherrastöðu sína. Augljósari dæmi um spillingu er erfitt að finna. Svona misferli má ekki viðgangast, annars verður það að krabbameini í íslenskum stjórnmálum og samfélagi, brýtur undan stoðum góðra stjórnarhátta og eyðileggur traust milli stjórnvalda og þjóðar. Raunar er nú þegar ástæða til að hafa áhyggjur af því að spilling Bjarna Benediktssonar hafi smitað stofnanir stjórnvalda. Í tölvupóstsamskiptum við matvælaráðuneytið í nóvember neitaði ráðuneytið því ítrekað að Jón Gunnarsson hefði nokkurn tímann haft eitthvað með hvalveiðileyfi í ráðuneytinu að gera. „Jón Gunnarson hefur ekki veitt ráðgjöf varðandi hvalveiðileyfisumsóknir í ráðuneytinu fyrir eða eftir 11. nóvember“. Íslensk náttúruverndarsamtök hafa nú þegar fordæmt útgáfu hvalveiðileyfa og segja þær ekki sýna lýðræðinu virðingu og ganga einnig gegn hagsmunum loftslags, náttúru og dýravelferðar. 113 alþjóðleg hafverndarsamtök og Jane Goodall hafa hvatt forseta Íslands og Bjarna Benediktsson til að hætta hvalveiðum. Nefnd í ráðuneytinu er að vinna skýrslu um hvalveiðar og alþjóðlegar skuldbindingar Íslands sem gefin verður út á nýju ári. Það var söguleg stund fyrir Ísland þegar kvenkynsforseti veitti þremur kvenkyns leiðtogum stjórnmálaflokka sem höfðu sigrað í kosningunum, umboð til stjórnarmyndunar. Samt ákvað Bjarni Benediktsson að það væri réttur hans, þó hann væri aðeins í tímabundinni stöðu, að gefa vinum sínum hvalveiðileyfi. Það er í höndum nýrrar ríkisstjórnar og Alþingis að grípa til aðgerða til að fella þessi ólögmætu leyfi tafarlaust niður, og landsmanna að lýsa yfir hneykslun sinni á þessu augljósa dæmi um pólitíska spillingu. Þetta snýst ekki bara um stjórnarhætti og vilja fólksins, það snýst um líf hvala, hvernig við komum fram við dýr og náttúru, hvernig við virðum alþjóðlega samninga, og framtíð jarðar fyrir okkur öll og börnin okkar. Höfundur er heimildarmyndagerðarmaður og baráttumaður fyrir hvölunum. Issuing Whaling Licenses is a Corruption and a Cancer What greater example do we need of the corruption of Bjarni Benediktsson and his failed government than his last minute decision to issue whaling licenses on his way out the door. It wasn't enough that Bjarni Benediktsson was outed in a scandal where he allegedly put Jón Gunnarsson, a friend of the whaler Kristjan Loftsson, into the ministry to issue whaling licenses in exchange for a seat in the election. It wasn't enough that he had a clear conflict of interest with a family member associated with the Kristjan Loftsson. It wasn't enough that he and his party suffered a humiliating defeat in the parliamentary elections. In the face of all of this, Bjarni Benediktsson went ahead and issued whaling licenses to his friends just before a new government is formed. There is no more naked kind of corruption than this. This kind of misconduct can not be allowed to stand or it will be a cancer in Icelandic politics and society, rotting the foundations of good governance, and destroying the bond of trust between the government and the people. In fact, there is already cause for concern that Bjarni Benediktsson's corruption has infected the institutions of government. In an email exchange in November with the Ministry of Food, Agriculture and Fisheries, the Ministry repeatedly denied that the Jón Gunnarson had ever had anything to do with whaling licenses in the ministry. "Jón Gunnarson has not advised on whaling license applications at the ministry before or after November 11." Icelandic conservation organizations have swiftly and roundly condemned the issuing of whaling licenses, saying that it does not show respect for democracy and goes against the interests of climate, nature and animal welfare. 113 International ocean conservation organizations and Jane Goodall have implored the President of Iceland and Bjarni Benediktsson to end the hunting whales. A committee in the Ministry is preparing a report on whaling and Iceland's international obligations, which will be issued in the new year. And in an historic moment for Iceland, a female president presented the mandate to form a new government to three female leaders of political parties that had won the election. And still, Bjarni Benediktsson decided it was his right, even though he was only in a caretaker position, to give his friends whaling licenses. It is up to the new Icelandic government and parliament to take action to immediately cancel these illegitimate licenses, and the people of Iceland to voice their outrage at this most blatant example of political corruption. It is not just about governance and the will of the people, it is about the lives of whales, how we treat animals and nature, how we respect international agreements, and the future of the planet for all of us and our children. The author is a filmmaker, writer and active in the effort to protect whales. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Micah Garen Hvalveiðar Ríkisstjórn Bjarna Benediktssonar Mest lesið Svar við greininni „Lífsstílslæknar og samsæriskenningar um mettaða fitu“ Hópur lækna Skoðun Opið bréf til Ingu Sæland Ragnar Erling Hermannsson Skoðun Agaleysi í íslenskum skólum - Kennarar þurfa valdið til baka Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir Skoðun Fjórar leiðir til að verða besta útgáfan af þér Sanna Magdalena Mörtudóttir Skoðun Lífsstílslæknar og samsæriskenningar um mettaða fitu Guðrún Nanna Egilsdóttir,Thor Aspelund,Jóhanna E. Torfadóttir Skoðun Rangfeðranir Sævar Þór Jónsson Skoðun Viðreisn, Sjálfstæðisflokkurinn og fátæka fólkið Yngvi Ómar Sighvatsson ,Jón Ferdínand Estherarson Skoðun Upplýsingaóreiða og rannsóknir á mettaðri fitu Hópur lækna Skoðun Ekkert samráð – ekkert traust Björg Eva Erlendsdóttir Skoðun Hvernig þjóð viljum við vera? Sigrún Lilja Guðbjörnsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Allir geta drukknað en enginn þarf að drukkna Hildur Vattnes Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Agaleysi í íslenskum skólum - Kennarar þurfa valdið til baka Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Svar við greininni „Lífsstílslæknar og samsæriskenningar um mettaða fitu“ Hópur lækna skrifar Skoðun Fjórar leiðir til að verða besta útgáfan af þér Sanna Magdalena Mörtudóttir skrifar Skoðun Ferðalag sálna Matthildur Björnsdóttir skrifar Skoðun Ekkert samráð – ekkert traust Björg Eva Erlendsdóttir skrifar Skoðun Viðreisn, Sjálfstæðisflokkurinn og fátæka fólkið Yngvi Ómar Sighvatsson ,Jón Ferdínand Estherarson skrifar Skoðun Að vera með BRCA-stökkbreytingu Brynja Rún Sævarsdóttir skrifar Skoðun Opið bréf til foreldra í Stakkaborg Jónína Einarsdóttir skrifar Skoðun Rammaáætlun og Hvammsvirkjun: Heimilt en ekki skylt Mörður Árnason skrifar Skoðun Hvernig þjóð viljum við vera? Sigrún Lilja Guðbjörnsdóttir skrifar Skoðun Meiri rökræður, minni áróður: Borgaraþing fyrir þjóðaratkvæðagreiðslu um ESB-aðild Valgerður Björk Pálsdóttir skrifar Skoðun Opið bréf til Ingu Sæland Ragnar Erling Hermannsson skrifar Skoðun Atvinnuþátttaka kvenna og karla Sigríður Ingibjörg Ingadóttir,Steinunn Bragadóttir skrifar Skoðun Mannekla á leikskólum Rakel Björk Benediktsdóttir Borg,Margrét Edda Gnarr,Hannes Daði Haraldsson skrifar Skoðun Tillaga um endurskoðun á virðisaukaskattskerfi deilihagkerfisins Þórir Garðarsson skrifar Skoðun Heimur hins sterka og óvissan framundan Hilmar Þór Hilmarsson skrifar Skoðun Umsögn um breytingar á ýmsum lögum vegna einföldunar og samræmingar leyfisferla á sviði umhverfis- og orkumála Erla Björk Þorgeirsdóttir skrifar Skoðun Viðhorf Leifur Helgi Konráðsson skrifar Skoðun Emma Lazarus og Frelsisstyttan Atli Harðarson skrifar Skoðun Rétt tímasetning skiptir öllu máli Ole Anton Bieltvedt skrifar Skoðun Lífsstílslæknar og samsæriskenningar um mettaða fitu Guðrún Nanna Egilsdóttir,Thor Aspelund,Jóhanna E. Torfadóttir skrifar Skoðun Sjálfræðissvipting þjóðar Ægir Örn Arnarson skrifar Skoðun Rangfeðranir Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Valkyrjur: Ekki falla á prófinu! Gunnar Hólmsteinn Ársælsson skrifar Skoðun Hvammsvirkjun og meintur orkuskortur Ólafur Páll Jónsson skrifar Skoðun 13,5 milljónir Sigurður Freyr Sigurðarson skrifar Skoðun Að vera léttvægur fundinn Guðmunda G. Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Fögnum vopnahléi og krefjumst varanlegs friðar Svandís Svavarsdóttir,Guðmundur Ingi Guðbrandsson skrifar Skoðun Er heimurinn á leið til helvítis? Árni Sigurðsson skrifar Sjá meira
Lífsstílslæknar og samsæriskenningar um mettaða fitu Guðrún Nanna Egilsdóttir,Thor Aspelund,Jóhanna E. Torfadóttir Skoðun
Viðreisn, Sjálfstæðisflokkurinn og fátæka fólkið Yngvi Ómar Sighvatsson ,Jón Ferdínand Estherarson Skoðun
Skoðun Agaleysi í íslenskum skólum - Kennarar þurfa valdið til baka Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir skrifar
Skoðun Svar við greininni „Lífsstílslæknar og samsæriskenningar um mettaða fitu“ Hópur lækna skrifar
Skoðun Viðreisn, Sjálfstæðisflokkurinn og fátæka fólkið Yngvi Ómar Sighvatsson ,Jón Ferdínand Estherarson skrifar
Skoðun Meiri rökræður, minni áróður: Borgaraþing fyrir þjóðaratkvæðagreiðslu um ESB-aðild Valgerður Björk Pálsdóttir skrifar
Skoðun Mannekla á leikskólum Rakel Björk Benediktsdóttir Borg,Margrét Edda Gnarr,Hannes Daði Haraldsson skrifar
Skoðun Tillaga um endurskoðun á virðisaukaskattskerfi deilihagkerfisins Þórir Garðarsson skrifar
Skoðun Umsögn um breytingar á ýmsum lögum vegna einföldunar og samræmingar leyfisferla á sviði umhverfis- og orkumála Erla Björk Þorgeirsdóttir skrifar
Skoðun Lífsstílslæknar og samsæriskenningar um mettaða fitu Guðrún Nanna Egilsdóttir,Thor Aspelund,Jóhanna E. Torfadóttir skrifar
Skoðun Fögnum vopnahléi og krefjumst varanlegs friðar Svandís Svavarsdóttir,Guðmundur Ingi Guðbrandsson skrifar
Lífsstílslæknar og samsæriskenningar um mettaða fitu Guðrún Nanna Egilsdóttir,Thor Aspelund,Jóhanna E. Torfadóttir Skoðun
Viðreisn, Sjálfstæðisflokkurinn og fátæka fólkið Yngvi Ómar Sighvatsson ,Jón Ferdínand Estherarson Skoðun