Dramatík þegar Arsenal gerði jafn­tefli á Craven Cottage

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Bukayo Saka skorar mark sem var dæmt af vegna rangstöðu.
Bukayo Saka skorar mark sem var dæmt af vegna rangstöðu. getty/David Price

Arsenal gerði 1-1 jafntefli við Fulham í Lundúnaslag í ensku úrvalsdeildinni í dag.

Raúl Jimenez kom Fulham yfir á 11. mínútu og staðan var 1-0 í hálfleik.

Hornspyrnur Arsenal hafa skilað mörgum mörkum í vetur og sú var líka raunin í dag. Á 52. mínútu skoraði William Saliba annað mark sitt í jafn mörgum leikjum.

Skytturnar héldu áfram að pressa og héldu að þær hefðu uppskorið þegar Bukayo Saka skallaði boltann í netið á 87. mínútu. En markið var dæmt af þar sem Gabriel Martinelli, sem sendi boltann á Saka, var rangstæður.

Arsenal er áfram í 2. sæti deildarinnar, nú með 29 stig, sex stigum á eftir toppliði Liverpool sem á leik til góða. Fulham er í 9. sætinu með 23 stig.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira