Innlent

Á­kveða á mánu­dag hvort faðirinn verði á­kærður

Árni Sæberg skrifar
Frá vettvangi við Krýsuvík þann 16. september, daginn eftir að Sigurður Fannar var handtekinn.
Frá vettvangi við Krýsuvík þann 16. september, daginn eftir að Sigurður Fannar var handtekinn. Vísir/Bjarni

Á mánudag mun Sigurður Fannar Þórsson, sem grunaður er um að hafa banað tíu ára dóttur sinni þann 15. september, hafa setið í gæsluvarðhaldi í tólf vikur. Héraðssaksóknari mun taka ákvörðun á mánudag hvort hann verði ákærður.

Sigurður Fannar hefur sætt gæsluvarðhaldi frá sunnudagskvöldinu 15. september, eftir að hann hringdi í lögreglu og tilkynnti að hann hefði ráðið dóttur sinni bana. Hann var handtekinn við Krýsuvíkurveg og lík dóttur hans fannst skammt frá.

Samkvæmt lögum um meðferð sakamála má ekki halda mönnum lengur en í tólf vikur án þess að ákæra sé gefin út á hendur þeim eða brýnir rannsóknarhagsmunir krefjist þess.

Karl Ingi Vilbergsson, saksóknari hjá Embætti héraðssaksóknara, segir í samtali við Vísi að á mánudag verði kaflaskil í málinu og taka þurfi ákvörðun um útgáfu ákæru. Að öðru leyti vill hann ekki tjá sig efnislega um málið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×