Skoðun

Ný­sköpun í heil­brigðistækni skilar á­vinningi

Arna Harðardóttir skrifar

Heilbrigðistækni er ekki aðeins tæki til að leysa vandamál – hún er leið til að bæta líf fólks. Ljóst er að tæknin er einn lykilþátta í því að ná árangri í heilbrigðismálum, t.a.m. með betri nýtingu gagna, aukinni sjálfvirkni og svo með gervigreind í mjög náinni framtíð. Um er að ræða eitt stærsta tækifæri Íslands til að styrkja heilbrigðiskerfi þjóðarinnar.

Farsæl Saga: Tækni aðlöguð að íslensku heilbrigðiskerfi

Ísland hefur verið í mjög framarlega meðal þjóða þegar kemur að heilbrigðistækni. Helix hefur þróað lausnir fyrir íslenskt heilbrigðiskerfi í rúm þrjátíu ár og náð markverðum árangri í uppbyggingu á tæknilegum innviðum. Á hverju ári eru um 2 milljónir tímabókana sem fara í gegnum Sögukerfið, 80.000 sendingar inn til Sjúkratrygginga Íslands, 1.6 milljónir skilaboða send í gegnum Heilsuveru og 2.5 milljónir lyfseðla, ásamt því að daglegir notendur eru fleiri en 10.000. Hvergi annars staðar er að finna sambærilega jafn heildstæða hugbúnaðarlausn og Sögu sjúkraskrákerfið.

Lausnin hefur verið þróuð frá grunni í samstarfi við heilbrigðisyfirvöld og notendur með íslenskt heilbrigðiskerfi í huga og er því sérsniðin að íslenskum aðstæðum. Ísland er á einstökum stað með samtengda sjúkraskrá fyrir heila þjóð sem gefur tækifæri til að standa fremst á heimsvísu varðandi hraða innleiðingu á nýjum og öflugum tæknilausnum. Þess vegna er Saga sjúkraskrá opið kerfi þar sem fjölmörg sprotafyrirtæki og nýsköpunarfyrirtæki, stofnanir og fyrirtæki hafa tengt inn sínar lausnir. Frekari framfarir í heilbrigðistækni felast í þróun og innleiðingu nýrra lausna.

Ávinningurinn er skýr

Það skiptir því miklu máli að Ísland haldi rétt á spöðunum næstu ár til að geta boðið stöðugt betri heilbrigðisþjónustu sem gagnast almenningi hér á landi. Í aðdraganda kosninganna heyrðist hjá flestum flokkum vilji til að leggja mun meiri áherslu á heilbrigðistækni enda liggja þar ótal tækifæri til að auka skilvirkni en um leið árangur og þjónustu við almenning. Við hjá Helix fögnum þessum áherslum stjórnmálaflokkanna. Reynslan hefur sýnt okkur að ávinningurinn af fjárfestingu í heilbrigðistækni er skýr fyrir íslenskt samfélag. Öflug heilbrigðistækni hefur stuðlað að bættri heilbrigðisþjónustu fyrir landsmenn og áframhaldandi styrking þeirra innviða er lykillinn að enn sterkara heilbrigðiskerfi hér á landi.

Höfundur er framkvæmdastjóri Helix.




Skoðun

Skoðun

Þorpið

Alina Vilhjálmsdóttir skrifar

Sjá meira


×