Þriðji stóri heimasigur Bournemouth á tíma­bilinu

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Dean Huijsen fagnar marki sínu fyrir Bournemouth gegn Tottenham.
Dean Huijsen fagnar marki sínu fyrir Bournemouth gegn Tottenham. getty/Harry Murphy

Bournemouth lyfti sér upp fyrir Tottenham og í 9. sæti ensku úrvalsdeildarinnar með sigri í leik liðanna í kvöld. Lokatölur á Vitality leikvanginum, 1-0.

Bournemouth hefur verið sterkt á heimavelli í vetur en auk Tottenham hefur liðið unnið heimasigra á Manchester City og Arsenal.

Tottenham er í 10. sæti deildarinnar en liðið hefur aðeins unnið einn af síðustu fjórum leikjum sínum.

Dean Huijsen skoraði eina mark leiksins í kvöld. Á 17. mínútu skallaði þessi nítján ára Spánverji hornspyrnu Marcus Tavernier í netið.

Þrátt fyrir að hafa nægan tíma til að jafna gerðu gestirnir sig sjaldan líklega. Heimamenn voru hættulegri aðilinn og áttu meðal annars átta skot á markið.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira