Innlent

Segjast ekkert tengjast meintu gervi­stéttarfélagi

Bjarki Sigurðsson skrifar
Aðalgeir Ástvaldsson er framkvæmdastjóri SVEIT.
Aðalgeir Ástvaldsson er framkvæmdastjóri SVEIT. Vísir

Efling hefur sakað atvinnurekendafélagið SVEIT um að reka „gervistéttarfélag“. Formaður Eflingar segir að ráðist sé að öllum mikilvægustu réttindum fólks á vinnumarkaði. SVEIT vísar ásökunum Eflingar á bug. 

Efling og Samtök fyrirtækja á veitingamarkaði, hér eftir SVEIT, hafa deilt um nokkurt skeið. Samtökin hafa reynt að gera sjálfstæðan samning við Eflingu þar sem laun og kjör eru með öðrum hætti en í kjarasamningi Eflingar við Samtök atvinnulífsins. Efling hefur ekki viljað skrifa undir þann samning þar sem stéttarfélagið telur kjör ófaglærðs fólks í veitingabransanum töluvert verri hjá SVEIT.

Málið fór alla leið til félagsdóms þar sem öllum kröfum SVEIT var hafnað eða vísað frá.

Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar segir félagið svo hafa fengið ábendingu frá ungum manni. Sá var að hefja störf á veitingastað á höfuðborgarsvæðinu og taldi að verið væri að brjóta á réttindum hans í kjarasamningi.

„Við fyrstu sýn sáum við að þarna voru einfaldlega atvinnurekendur í veitingageiranum, fólk sem er inni í SVEIT og tengist SVEIT, að stofna sitt eigið gervistéttarfélag til þess að geta gert þennan draumasamning SVEIT við vinnandi fólk,“ segir Sólveig Anna.

Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflinar segir ákvörðun Seðlabankans ða lækka ekki vexti einungis koma niður á tekjulægri hópum.Vísir/Arnar

Stéttarfélagið heitir Virðing og meðal stjórnarmanna þar eru átján ára dóttir stjórnarmanns í SVEIT og fleiri innan úr veitingageiranum. Sólveig segir alvarlegt ef samtök fyrirtækja stofna eigið stéttarfélag.

„Þegar þú ferð að skoða launatöflurnar og önnur atriði í kjarasamningi er strax ljóst að ekki er bara verið að rýra kjör verulega. Manneskja sem fer að vinna eftir samningi SVEIT og Virðingar er að fara að fá laun sem eru 52 þúsund krónum lægri á mánuði. Til viðbótar á það er ráðist að eiginlega öllum mikilvægustu réttindum fólks á vinnumarkaði,“ segir Sólveig og nefnir sjúkrasjóð, veikindarétt, rétt barnshafandi kvenna og fleira.

Fréttastofa hefur reynt að ná tali af fulltrúum Virðingar í dag án árangurs. Aðalgeir Ástvaldsson, framkvæmdastjóri SVEIT, vísaði því á bug í stuttu spjalli að samtökin tengdust stéttarfélaginu með nokkrum hætti.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×