Innlent

Tveir teknir með falin fíkni­efni á leið til Ísa­fjarðar

Árni Sæberg skrifar
Svo virðist sem ferðalangarnir hafi ætlað að selja kannabis og kókaín á Ísafirði.
Svo virðist sem ferðalangarnir hafi ætlað að selja kannabis og kókaín á Ísafirði. Vísir/Einar

Síðdegis á miðvikudaginn handtók lögreglan á Vestfjörðum tvo ferðalanga sem voru á leið frá höfuðborgarsvæðinu til Ísafjarðar. Grunur hafði vaknað um að þeir væru með fíkniefni í fórum sínum. Við leit í bílnum fundust vandlega falin fíkniefni í nokkru magni.

Í tilkynningu Lögreglunnar á Ísafirði á Facebook segir að ferðalangarnir hafi verið fluttir á lögreglustöðina á Ísafirði og leit framkvæmd í bifreið þeirra og á þeim sjálfum. Fíkniefnaleitarhundur lögreglunnar á Vestfjörðum, Krummi, hafi aðstoðað við leitina.  

Kannabisefni og kókaín í nokkru magni hafi fundist í bílnum þrátt fyrir að hafa verið vandlega falin.

Magnið bendir til þess að efnin hafi verið ætluð til sölu

Mönnunum hafi verið sleppt að yfirheyrslum loknum. Ekki liggi fyrir játning um að efnin hafi verið ætluð til dreifingar en efnismagnið bendi til þess gagnstæða.

„Lögreglan á Vestfjörðum vill nota tækifærið og hvetja alla sem búa yfir upplýsingum eða hafa grun um fíkniefnameðhöndlun að koma ábendingum um það til lögreglunnar. Það er hægt að gera með því að hringja í 112 og biðja um lögregluna á Vestfjörðum, eða með því að hringja í 4440400. Þá er hægt að hringja í upplýsingasíma lögreglunnar, nafnlaust, sem er 800 5005 eða leggja inn skilaboð, sjá hlekkinn hér að neðan.“

Tilkynningarinnar beðið síðan á miðvikudag

Málið hefur ratað í fjölmiðla áður en þá í tengslum við nokkuð skondinn misskilning. Mbl.is greindi frá fjölmennri lögregluaðgerð við Stjórn­sýslu­hús Ísa­fjarðar á miðvikudag en húsið hýsir hinar ýmsu stofnanir og fyrirtæki. Mbl.is hafði eftir Helga Jenssyni, lögreglustjóranum á Vestfjörðum, að hann gæti ekki tjáð sig um málið og von væri á tilkynningu vegna þess.

Í ljós kom að um æfingu var að ræða og Helgi hélt að blaðamaður Mbl.is væri að tala um fíkniefnamálið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×