Sport

Littler gæti mætt Sherrock á HM

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Ljóst er að viðureign Lukes Littler og Fallons Sherrock myndi vekja mikla athygli.
Ljóst er að viðureign Lukes Littler og Fallons Sherrock myndi vekja mikla athygli. vísir/getty

Silfurverðlaunahafinn á síðasta heimsmeistaramóti í pílukasti, Luke Littler, gæti mætt Fallon Sherrock á HM sem hefst í næsta mánuði.

Ljóst er hvaða 96 keppendur verða á HM 2025 og búið er að draga. Heimsmeistaramótið stendur frá 15. desember til 3. janúar.

Sherrock, sem varð fyrsta konan til að vinna leik á HM fyrir fimm árum, mætir Ryan Meikle í 1. umferð mótsins. Ef hún sigrar hann mætir hún Littler í 2. umferð. Efstu 32 á heimslistanum koma inn í 2. umferð.

Sherrock vakti heimsathygli þegar hún vann Ted Evetts og Mensur Suljovic á HM 2020. Hún komst ekki á HM 2021 en hefur dottið út í 1. umferð á síðustu þremur heimsmeistaramótum.

Littler skaust upp á stjörnuhimininn á síðasta heimsmeistaramóti. Þrátt fyrir að vera aðeins sextán ára vann hann hvern andstæðinginn á fætur öðrum og komst alla leið í úrslit þar sem hann tapaði fyrir Luke Humphries. Littler hefur fylgt árangrinum á HM vel eftir og unnið tíu mót á sínu fyrsta tímabili sem atvinnumaður.

Heimsmeistarinn Humphries mætir annað hvort Thibault Tricole eða Joe Comito í 2. umferð á HM í ár. Humphries og Littler gætu mæst í undanúrslit ef þeir vinna allar sínar viðureignir fram að þeim.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×