Fótbolti

Þjálfari Messi hættir

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Argentínumennirnir Gerardo Martino og Lionel Messi.
Argentínumennirnir Gerardo Martino og Lionel Messi. getty/Kenta Harada

Gerardo „Tata“ Martino er hættur sem þjálfari Inter Miami sem Lionel Messi, Luis Suárez og fleiri stórstjörnur leika með.

ESPN greinir frá því að Martino hafi hætt hjá Inter Miami af persónulegum ástæðum. Hann átti eitt ár eftir af samningi sínum við félagið.

Martino tók við Inter Miami í júní 2023. Undir hans stjórn vann liðið deildabikarinn 2023 og stuðningsmannaskjöldinn 2024. Inter Miami setti stigamet í deildarkeppni MLS á þessu tímabili en féll úr leik fyrir Atlanta United í 1. umferð úrslitakeppninnar.

Messi gekk í raðir Inter Miami í fyrra. Hann spilaði þar í þriðja sinn undir stjórn Martinos. Hann þjálfaði hann áður hjá Barcelona og argentínska landsliðinu.

Martino stýrði Atlanta United til sigurs í MLS 2018. Hann hefur komið víða við á þjálfaraferlinum og meðal annars stýrt landsliðum Paragvæ, Argentínu og Mexíkós.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×