Innlent

Sam­þykktu að strætó stoppi við Egils­staða­flug­völl

Kjartan Kjartansson skrifar
Íbúar Múlaþings geta bráðlega ferðast ókeypis með strætó til Egilsstaðaflugvallar. Sumir voru ósáttir við að þurfa að greiða fyrir bílastæði þar.
Íbúar Múlaþings geta bráðlega ferðast ókeypis með strætó til Egilsstaðaflugvallar. Sumir voru ósáttir við að þurfa að greiða fyrir bílastæði þar. Vísir/Jóhann K.

Umhverfis- og framkvæmdaráð Múlaþings samþykktu einum rómi að strætó skuli stoppa við Egilsstaðaflugvöll á fundi sínum á mánudag. Óánægja á meðal bíleigenda blossaði upp eftir að byrjað var að rukka fyrir bílastæði við flugvöllinn fyrr á þessu ári.

Nýja stoppistöðin við flugvöllinn verður ekki eina breytingin sem verður gerð á akstursleið strætó á milli Egilsstaða og Fellabæjar með samþykkt ráðsins. Í fundargerð kemur fram að fækka þurfi stoppum á móti til þess að akstursáætlunin haldi.

Ekki var tekið fram hverri þeirra nítján stoppistöðva sem nú er á áætluninni verði fórnað fyrir flugvallarstöðina. Ungmennaráð Múlaþings lagði til í umsögn að skoðað yrði að taka út stöðina við fjölnotahúsið í Fellabæ vegna þess hversu óhentug hún væri, sérstaklega á veturna. 

Þá lagði það til að hafa tvær stoppistöðvar í Fellabæ, aðra þeirra fyrir neðan Fellavöll en hina fyrir ofan Fellaskóla. Í staðinn yrði stoppistöð við bensínstöð í Fellabæ fjarlægð.

Dótturfélag Isavia sem rekur innanlandsflugvelli hóf gjaldtöku á bílastæðum við þrjá flugvelli í sumar, þar á meðal Egilsstaðaflugvöll. Einn Austurlendingur var svo óánægður með þá breytingu að hann stofnaði Facebook-hóp til þess að fólk gæti óskað eftir að boðið að skutla til eða frá flugvellinum, gagngert til þess að komast hjá því að greiða bílastæðagjöldin. Fleiri en sjö hundruð manns eru nú í hópnum.

Strætóferðir eru gjaldfrjálsar í Múlaþingi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×