Innlent

Rann­saka hópárás á tvo ein­stak­linga

Hólmfríður Gísladóttir skrifar
Lögregla rannsakar árás þar sem hópur réðist á tvo.
Lögregla rannsakar árás þar sem hópur réðist á tvo. Vísir/Vilhelm

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu rannsakar nú líkamsárás þar sem grunur leikur á um að hópur einstaklingar hafi ráðist á tvo. 

Engar frekari upplýsingar er að finna um málið í yfirliti lögreglu yfir verkefni næturinnar, nema að árásin átti sér stað í umdæminu Grafarvogur/Mosfellsbær/Árbær.

Lögreglu barst einnig tilkynning á vaktinni um rúðubrot í strætó. 

Þá voru þrír stöðvaðir í umferðinni; einn fyrir akstur sviptur ökuréttindum, annar fyrir of hraðan akstur og sá þriðji fyrir akstur undir áhrifum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×