Bjarni segir vinnumarkaðslöggjöfina vera í „ákveðnum ógöngum“
![Á kosningafundi Samtaka atvinnulífsins kom meðal annars fram í máli Bjarna Benediktssonar forsætisráðherra að hann teldi alltof fáa sem taki þátt í umræðu um ríkisútgjöld og aukningu þeirra skilji hversu hátt hlutfall af nafnvirðisaukningu ríkisútgjalda yfir tíma sé ekkert annað en launahækkanir.](https://www.visir.is/i/BB97652219FFD379C1FDDA3E8A56BA12697339F3FAF2388296C186180A375C24_713x0.jpg)
Umbætur á vinnumarkaðsmódelinu myndu leiða af sér stöðugleika í ríkisfjármálunum, að sögn framkvæmdastjóra Samtaka atvinnulífsins. Forsætisráðherra telur of langt gengið þegar stéttarfélög geta tekið einstaka vinnustaði „í gíslingu“ og vill sjá breytingar á valdheimildum ríkissáttasemjara á meðan formaður Samfylkingarinnar er opin fyrir skrefum í þá átt í sátt við verkalýðshreyfinguna.