Innlent

Halla sinnir störfum for­manns VR

Atli Ísleifsson skrifar
Halla Gunnarsdóttir tók sæti í stjórn VR á síðasta ári.
Halla Gunnarsdóttir tók sæti í stjórn VR á síðasta ári. Vísir/vilhelm

Halla Gunnarsdóttir, varaformaður VR, mun sinna störfum formanns VR, á meðan Ragnar Þór Ingólfsson formaður verður í leyfi frá störfum næstu vikurnar.

Stjórn VR kom saman til fundar í gærkvöldi þar sem Ragnar Þór tilkynnti stjórninni formlega frá ákvörðun sinni, en hann mun skipa efsta sæti á lista Flokks fólksins í Reykjavíkurkjördæmi norður í alþingiskosningunum sem fram fara 30. nóvember.

„Varaformaður VR, Halla Gunnarsdóttir, mun sinna störfum formanns á meðan hann er í leyfi,“ segir í tilkynningu á vef VR.

„Þetta bar frekar brátt að á sínum tíma og ég var spurður að því hvort þetta myndi áhrif á störf mín sem formaður VR og síðan tók fólk það hingað og þangað. Ég tel þessa ákvörðun rétta. Við erum á milli kjarasamninga og ákveðin verkefni sem ég þarf að sinna líka þó ég taki mér frí,“ sagði Ragnar í samtali við fréttastofu á mánudag þar sem hann sagði frá því að hann myndi taka sér leyfi frá störfum.

Þar sagði hann ennfremur að hann ef hann yrði kjörinn á þing myndi hann láta af störfum sem formaður VR. Hann hefur gegnt stöðunni frá árinu 2017.

Halla er alþjóðastjórnmálafræðingur og kennari að mennt sem hefur áður starfað við blaðamennsku og sem aðstoðarmaður Ögmundar Jónassonar, ráðherra á árunum 2009 til 2013. Þá var hún um tíma ráðgjafi ríkisstjórnar Katrínar Jakobsdóttur í jafnréttismálum og síðar framkvæmdastjóri ASÍ á árunum 2020 til 2020.


Tengdar fréttir

Kosningavaktin: Íslendingar ganga að kjörborðinu

Alþingi Íslendinga hefur verið rofið og kosningar boðaðar þann 30. nóvember næstkomandi. Fylgst verður með nýjustu tíðindinum í aðdraganda kosninga hér í Kosningavaktinni. Ábendingar má senda á ritstjorn@visir.is.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×