Tíska og hönnun

Lítið um lita­dýrð en glamúrinn í há­vegum hafður

Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar
Það var lítið um litadýrð á Academy Museum Gala um helgina en það vantaði ekki glamúrinn.
Það var lítið um litadýrð á Academy Museum Gala um helgina en það vantaði ekki glamúrinn. SAMSETT

Glamúrinn var sannarlega í fyrirrúmi á laugardagskvöld þegar stórstjörnur heimsins komu saman í sínu fínasta pússi á galakvöldi Academy Museum í Los Angeles. 

Viðburðurinn er fjáröflun fyrir starfsemi safnsins. Paul Mescal, Rita Moreno og Quentin Tarantino hlutu heiðursverðlaun kvöldsins og gestalistinn var vægast sagt stjörnum prýddur. 

Stórstjörnur á borð við Nicole Kidman, Salma Hayek, Eva Longoria, Tyler Perry, Kirsten Dunst, Ariana Grande, Demi Moore og Saoirse Ronan komu að skipulagningu hátíðarinnar og meðal gesta voru Kardashian fjölskyldan, Selena Gomez, Cara Delevigne, Pamela Anderson og svo lengi mætti telja. 

Svörtu og hvítu litirnir voru hvað vinsælastir í klæðaburði stjarnanna í bland við mýkri jarð- og pastel liti og var gala þemað tekið alla leið. 

Hér má sjá myndir af nokkrum stjörnum kvöldsins sem skinu skært: 

Cynthia Erivo tróð óvænt upp á galakvöldinu en hún fer með hlutverk í nýrri útgáfu af kvikmyndinni Wicked. Hún klæddist glæsilegum grænum kjól frá Louis Vuitton.Taylor Hill/FilmMagic
Söngkonan og leikkonan Ariana Grande algjör dúlla í doppum. Kjóllinn er sérhannaður frá tískurisanum Balmain.Michael Buckner/Variety via Getty Images
Leikkonan og sjarmatröllið Natasha Lyonne í Valentino.Taylor Hill/FilmMagic
Hin eina sanna Kim Kardashian í einstöku fitti frá tískurisanum Mugler, úr línu frá 1998.Amy Sussman/Getty Images
Stórleikkonan Nicole Kidman algjör gala gella í kjól úr hátískulínu Balenciaga.Amy Sussman/Getty Images
Michaela Jae Rodriguez stórglæsileg í glitrandi galakjól frá Georges Chakra.Taylor Hill/FilmMagic
Kylie Jenner algjör bomba í kjól frá Mugler, sömuleiðis úr línu tískurisans frá 1998 eins og systir hennar Kim.Amy Sussman/Getty Images
Hlaðvarps- og samfélagsmiðlastjarnan Addison Rae glæsileg í gegnsæjum og bláum kjól frá Alberta Ferretti.Taylor Hill/FilmMagic
Leikstjórinn Quentin Tarantino ásamt listagyðju hans stórleikkonunni Uma Thurman. Tarantino fékk heiðursverðlaun á galakvöldinu.Matt Winkelmeyer/WireImage
Cara Delevingne brýtur normið og rokkar stuttan galakjól frá Celine.Taylor Hill/FilmMagic
Rita Moreno var heiðruð af Academy Museum. Hún er stórglæsileg í drapplitaðri dragt frá Dior.Taylor Hill/FilmMagic
Saoirse Ronan flott í Louis Vuitton.Amy Sussman/Getty Images
Leikkonan og grínistinn Aubrey Plaza bleik bomba með slaufu á í Miu Miu.Taylor Hill/FilmMagic
Norska leikkonan Renate Reinsve æðislega flott í listrænum gullkjól frá Louis Vuitton.Amy Sussman/Getty Images
Leikarinn Paul Mescal var heiðraður sem rísandi stjarna og rokkaði glæsileg Gucci jakkaföt.Kevin Winter/GA/The Hollywood Reporter via Getty Images
Óskarsverðlaunahafinn Da'Vine Joy Randolph bleikur draumur í Louis Vuitton.Michael Buckner/Variety via Getty Images
Kjúklingadrottningin Amelia Dimoldenberg sem heldur uppi spjallþættinum Chicken shop date er orðin algjör súperstjarna og rokkaði hér svartan gala síðkjól.Taylor Hill/FilmMagic
Zoe Saldana í mjög framúrstefnu fitti frá Harris Reed.Gilbert Flores/WWD via Getty Images
Selena Gomez í leðri og flauel í dökkbláum síðkjól frá goðsögninni Alaïa.Gilbert Flores/WWD via Getty Images
Grey's stjarnan Sandra Oh í svörtu og hvítu frá Giambattista Valli.Taylor Hill/FilmMagic
Raunveruleikastjarnan og súpermódelið Kendall Jenner stórfengleg í Schiaparelli.Amy Sussman/Getty Images
Pamela Anderson heldur áfram að rokka ófarðað andlit og er skínandi í kjól frá The Row.Taylor Hill/FilmMagic
Aðþrengda eiginkonu-stjarnan Eva Longoria í framúrstefnulegum kjól frá Georges Hobeika.Taylor Hill/FilmMagic





Fleiri fréttir

Sjá meira


×