Óaðfinnanleg Elín Klara skaut Haukum upp í þriðja sætið Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 16. október 2024 19:45 Elín Klara var óstöðvandi í kvöld. Vísir/Hulda Margrét Haukar eru komnir í 3. sæti Olís-deildar kvenna í handbolta eftir góðan sigur á ÍR sem áttu engin svör við stórbrotnum leik Elínar Klöru Þorkelsdóttur.
Fyrri hálfleikur á Ásvöllum var hin mesta skemmtun og munurinn aðeins tvö mörk í hálfleik, staðan þá 12-10. Í síðari hálfleik var hins vegar annað upp á teningnum þar sem heimaliðið náði upp góðri forystu en ÍR-ingar bitu frá sér og var munurinn aftur kominn niður í tvö mörk um miðjan síðari hálfleik. Hingað og ekki lengra var hins vegar svar Hauka sem fóru í fimmta gír undir lok leiks og unnu á endanum átta marka sigur, lokatölur 28-20. Eins og svo oft áður var Elín Klara allt í öllu í leik Hauka en samkvæmt tölfræði leiksins spilaði hún hreint út sagt óaðfinnanlega í kvöld. Skoraði Elín Klara 14 mörk úr 14 skotum. Þar á eftir kom Rakel Oddný Guðmundsdóttir með fjögur mörk á meðan Sara Sif Helgadóttir varði 17 skot í markinu og var með 46 prósent markvörslu. Sara Dögg Hjaltadóttir var markahæst hjá ÍR með sex mörk og Karen Tinna Demian kom þar á eftir með fjögur mörk. Ingunn María Brynjarsdóttir varði níu skot í markinu. Haukar eru nú með 8 stig í 3. sæti að loknum sex leikjum, stigi minna en Fram og tveimur minna en topplið Vals sem á leik til góða. ÍR er í 7. sæti með tvö stig og hefur ekki enn unnið leik.
Handbolti Olís-deild kvenna Haukar ÍR Mest lesið Bein útsending: Landsliðakeppni í Bakgarðshlaupi Sport Mögnuð Mari nýtti hverja einustu sekúndu Sport „Þetta var allt of mikið“ Fótbolti Kane brást illa við gríni Valsarans Körfubolti Sjáðu mark Sveindísar sem fer á kostum í Bandaríkjunum Fótbolti Tár féllu í Bakgarðshlaupinu Sport FH-ingar biðla til bareigenda, presta og trúarleiðtoga Íslenski boltinn Sjáðu mörkin: KR tryggði annað sætið og fallbaráttan tók óvænta stefnu Íslenski boltinn Nokkuð viss um að Íslandsmetið verði slegið Sport „Falleg stund að fá að keppa á móti litla bróður“ Fótbolti Fleiri fréttir Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Þungt tap Íslendingaliðsins Viktor öflugur í öruggum sigri Enn með fullt hús ÍBV vann toppslaginn Sjá meira