Atvinnulíf

Konurnar ofþreyttar en karl­menn vilja meiri frið til að vinna

Rakel Sveinsdóttir skrifar
Trausti Heiðar Haraldsson, framkvæmdastjóri Prósent, segir segir gífurlegar fjárhæðir felast í kulnun fólks á vinnumarkaði, sem nú mælist nokkuð jöfn hjá körlum og konum. Rannsóknir sýna að hvert kulnunartilfelli er kostnaður sem samsvarar launum í hálft ár til tvö ár.
Trausti Heiðar Haraldsson, framkvæmdastjóri Prósent, segir segir gífurlegar fjárhæðir felast í kulnun fólks á vinnumarkaði, sem nú mælist nokkuð jöfn hjá körlum og konum. Rannsóknir sýna að hvert kulnunartilfelli er kostnaður sem samsvarar launum í hálft ár til tvö ár. Vísir/Vilhelm

„Kulnun smitar út frá sér á vinnustað og samkvæmt rannsóknum er viðkomandi ekki fær um að veita viðskiptavinum jafn góða þjónustu og ella væri,“ segir Trausti Heiðar Haraldsson framkvæmdastjóri Prósents þegar niðurstöður nýrrar könnunar Prósents eru ræddar.

Þsem meðal annars kemur fram að kulnun karlmanna er að mælast nokkuð svipuð og hjá konum, eða 9% hjá körlum og 10% hjá konum.

„Mælingin nær eingöngu til fólks sem er í starfi,“ segir Trausti og bendir á að þetta þýði í raun að einn af hverjum tíu starfsmönnum í atvinnulífinu upplifi einkenni kulnunar.

En þetta eru þó ekkert endilega stærstu fréttirnar sem lesa má úr niðurstöðum rannsóknarinnar.

Því eitt það athyglisverðasta sem sjá má er að aðeins 38% vinnuafls á Íslandi flokkast sem að vera virk í vinnunni.

62% upplifa sig hins vegar:

  • Árangurslaus
  • Ofþreytt
  • Í kulnun
  • Eða óvirk
Þótt hægt sé að sjá á niðurstöðum rannsókna hversu kostnaðarsöm kulnaðartilfelli eru, má einnig velta fyrir sér hver kostnaður atvinnulífsins er þegar 62% vinnuafls á Íslandi upplifir sig árangurslaus, ofþreytt, í kulnun eða óvirk í starfi.Vísir/Prósent



Gífurlegar fjárhæðir

Þetta er í fimmta sinn sem Prósent kynnir niðurstöður rannsóknar um kulnun, en rannsóknin byggir á Maslach-módelinu.

Könnunin var send á um 1.800 manns sem eru á vinnumarkaði. Svarhlutfall var 50%. Niðurstöður eru vigtaðar með tilliti til aldurs, kyns og búsetu til að niðurstöður endurspegli álit þjóðarinnar.

Þegar kemur að niðurstöðum um kulnun, bendir Trausti á að eins og fyrri kannanir hafa sýnt, er fylgni á milli starfsánægju og kulnunar.

,,Aðeins 2% þeirra sem eru mjög ánægð í starfi eru í kulnun.“

Sem fyrr eru það sölu- og markaðsfólkið sem er að mælast hæst í kulnun, eða 15%. Næst er það fólk í iðnaðarstörfum og síðan fólk í stjórnunarstörfum.

Að einn af hverjum tíu starfsmönnum sé í kulnun, segir Trausti vægast sagt nokkuð dýrt fyrir atvinnulífið.

,,Rannsóknir hafa sýnt að hvert kulnunartilfelli er kostnaður sem samsvarar launum í hálft ár til tvö ár,“ segir Trausti og bætir við:

Það segir sig því sjálft að starfsmaður sem er til dæmis á 800 þúsund króna mánaðarlaunum en fer í kulnun, að ef kostnaðurinn eru 24 mánuðir sinnum 800 þúsund krónur plús launatengd gjöld, þá eru þetta gríðarlegar upphæðir fyrir hvaða rekstur sem er.“

Einkageirinn mælist með hærri kulnun en starfsfólk sem starfar hjá hinu opinbera.

„Það sem er athyglisvert líka er að fólk með lág laun auka ekki endilega líkur á kulnun. Heldur þættir eins og lítill stuðningur frá yfirmanni eða lítil tækifæri til starfsfþróunar,“ segir Trausti.

Lítill stuðningur frá yfirmanni er það sem hefur langmestu áhrifin á líkur á kulnun og síðan tækifæri til starfsþróunar. Launin mælast í áttunda sæti sem áhrifaþáttur.Vísir/Prósent

Karlar vilja meiri frið til að vinna

Trausti segir líka athyglisvert að fjórir af hverjum tíu upplifa sig vikulega eða oftar útkeyrða eftir vinnu í lok hvers dags.

Þar af eru 44% kvenna að upplifa sig útkeyrðar vikulega eða oftar í lok vinnudags. Þetta hlutfall er 35% hjá karlmönnum.

Fjórðungur kvenna á vinnumarkaði upplifa sig ofþreyttar.

Karlmenn vilja hins vegar meiri frið til að vinna vinnuna sína.

Karlar segjast í meira mæli en konur vilja fá meiri frið til að vinna vinnuna sína og ekki láta trufla sig, 60% karla upplifa það einu sinni í viku eða oftar eða að meðaltali 106 vinnudaga á ári en 54% kvenna eða 91 vinnudag á ári.“

Karlar virðast í meira mæli vilja fá meiri frið til að vinna og láta ekki trufla sig í samanburði við konur. Þá sýna niðurstöður að fjórðungur kvenna á vinnumarkaði upplifir sig ofþreyttar. Rannsóknir Prósent sýna einnig að konur sjá meira um þriðju vaktina en karlar.Vísir/Prósent

Eitt af því sem er mjög athyglisvert að sjá í rannsóknarniðurstöðum Prósents er hvernig fólk er að upplifa sig tilfinningalega örmagna eftir daginn.

Á tímum Covid mældist þetta hlutfall 36-43 vinnudagar á ári.

Í dag segist starfandi fólk upplifa sig tilfinningalega örmagna í lok vinnudags í 54 daga á ári.

„Það er samt erfitt að átta sig á því hvað nákvæmlega veldur þessu. Kannski að það hafi verið erfitt fyrir marga að snúa aftur til starfa eftir heimaveruna í Covid. Margir í könnunni segjast vakna þreyttir á hverjum morgni. Þó segjast flestir upplifa sín afköst góð í starfi,“ segir Trausti og bætir við:

Samkvæmt niðurstöðum hafa börn á heimili ekki áhrif á það hvort fólk er að upplifa sig örmagna eða í kulnun. 

Það er athyglisvert með tilliti til þess að það er einmitt fólk á aldrinum 25-34 ára sem er að upplifa sig tilfinningalega örmagna í flesta daga, eða 71 dag alls.“

Trausti segir athyglisvert að sjá að aldurshópurinn 25-34 ára upplifir sig tilfinningalega örmagna flesta daga yfir árið, eða 71 dag alls. Þó sýni niðurstöður rannsókna að börn á heimili hafa ekki áhrif á það hvort  fólk er að upplifa sig örmagna eða í kulnun.Vísir/Prósent

Um þriðjungur vinnuafls finnst erfitt að vinna allan daginn. Þá sýna niðurstöður að fólk er almennt að upplifa minni gleði.

„Fólk virðist upplifa gleði yfir því sem áorkast hefur í vinnunni, færri daga en áður. Konur virðast upplifa gleði oftar þegar tekst að leysa úr málum í samanburði við karla,“ segir Trausti en bendir líka á að heilt yfir segist mikill meirihluti fólks vera í góðum gír í vinnunni 190 daga á ári.

Þá er það ekki fjárhagur eða áhyggjur almennt, sem virðast hafa mestu áhrifin á það hvort fólk fer í kulnun eða ekki, heldur þættir eins og skortur á frítíma og andleg heilsa.

Skortur á frítíma og andleg heilsa hefur mestu áhrifin á það hvort fólk upplifir sig örmagna eða í kulnun. Næst er það vandamál með maka og í fjórða sæti mælist fjárhagur.Vísir/Prósent

Margt er þó ánægjulegt að sjá í niðurstöðum. Til dæmis kulnun virðist ekki vera að aukast í ár samanborið við í fyrra.

Þá koma niðurstöður um afköst í starfi mjög vel út. Því meirihluti svarenda upplifir nokkrum sinnum í viku eða daglega að það sé að koma mikilvægu til leiðar í vinnunni, finnur fyrir gleði og finnst það geta leyst vandamál.


Tengdar fréttir

Kulnun eftir Covid áberandi hjá 18-24 ára og sölu- og markaðsfólki

„Það sem gerir niðurstöðurnar fyrir 18 til 24 ára sláandi er hversu mikil breyting er á milli ára. Kulnun hjá þessum aldurshópi mælist 6 til 7% fyrir og í Covid en eykst hratt og mælist 17% eftir Covid. Sú starfsgrein þar sem kulnun mælist líka mjög há er til dæmis hjá sölu- og markaðsfólki,“ segir Trausti Heiðar Haraldsson framkvæmdastjóri Prósent.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×