Síðasta farþegaflug Air Atlanta á Boeing 747-júmbóþotunni Kristján Már Unnarsson skrifar 29. september 2024 21:21 Síðasta Boeing 747-farþegaþota Air Atlanta á flugvellinum í Jedda í Sádí-Arabíu í sumar. Pílagrímar á heimleið til Indónesíu ganga um borð. Egill Aðalsteinsson Flugfélagið Air Atlanta er að kveðja Boeing 747-breiðþotuna sem farþegaflugvél eftir 31 ár í rekstri. Síðasta farþegaflug Atlanta á júmbó-þotunni verður sérstakt kveðjuflug til Norður-Afríku um næstu helgi með starfsmenn félagsins.
Þotan sem lýkur ferlinum flaug yfir höfuðstöðvar Atlanta í Kópavogi, sem og yfir Reykjavíkurflugvöll, um tvöleytið í gær áður en hún lenti á Keflavíkurflugvelli eftir nærri átta stunda beint flug frá Jedda í Sádí-Arabíu. Hún flaug yfir Reykjavíkursvæðið í þrjúþúsund feta hæð en vegna stærðar hennar hafa eflaust margir sem sáu hana talið hana fljúga mun lægra yfir borginni. Síðasta Boeing 747-farþegaþota Air Atlanta yfir Reykjavík í gær.Egill Aðalsteinsson Þessi tiltekna þota, af undirgerðinni 747-400, var merkt Saudia-flugfélaginu, sem Atlanta flýgur fyrir, og sinnti hún meðal annars pílagrímaflugi í sumar. Hún er skrásett hjá systurfélaginu Air Atlanta Europe á Möltu með skráningarnúmerið 9H-AZA og getur borið 460 farþega. Hún var upphaflega smíðuð fyrir Air France og afhent í marsmánuði árið 2004. Árið 2016 var hún tekin í þjónustu Air Atlanta Icelandic sem TF-AAL. Atlanta júmbóþotunni ekið frá pílagrímaflugstöðinni í Jedda í sumar á leið í flugtak með 450 farþega um borð.Egill Aðalsteinsson Stöðvar 2-menn, við kvikmyndatökur vegna þáttaraðarinnar Flugþjóðin, fylgdust með því á flugvellinum í Jedda í júlímánuði þegar pílagrímar á heimleið til Indónesíu gengu um borð í flugvélina. Guðlaugur Ingi Sigurðsson flugstjóri og áhöfn hans voru þá að leggja upp í níu stunda flug með 449 pílagríma. Síðasta farþegaflug hennar eftir tuttugu ára þjónustu verður fjögurra daga ferð með starfsmenn Air Atlanta til Marokkó. Flogið verður frá Keflavík næstkomandi fimmtudag og komið til baka á sunnudag, samkvæmt upplýsingum frá félaginu. Mánudaginn 7. október verður henni svo flogið til Cotswold-flugvallar norðaustan Bristol þar sem hennar bíður niðurrif í endurvinnslustöð. Atlanta-flugfélagið er komið með fjórar nýrri og hagkvæmari tveggja hreyfla Boeing 777-farþegaþotur, sem leysa 747-þoturnar af hólmi. Þótt farþegaflugi Air Atlanta á 747-þotum ljúki þar með mun félagið áfram nýta þær til fraktflutninga. Baldvin Már Hermannsson, forstjóri Air Atlanta, sagði í viðtali við Stöð 2 í fyrra að sem fraktvélar ættu 747-þoturnar mörg góð ár eftir. Það vakti þjóðarathygli vorið 1993 þegar Air Atlanta, undir stjórn stofnandans Arngríms Jóhannssonar, tók fyrstu Boeing 747-þoturnar í notkun enda voru þær þá stærstu farþegaflugvélar heims. Þær þotur voru einnig merktar Saudia-flugfélaginu, kaupanda þjónustunnar, og sinntu sömuleiðis pílagrímaflugi. Fyrsta Boeing 747-þota Air Atlanta, TF-ABK, kom til Keflavíkur vorið 1993. Hún hlaut nafnið Agnar Kofoed-HansenStöð 2/Billi Svo skemmtilega vill til að í fimmta þætti Flugþjóðarinnar, sem er á dagskrá Stöðvar 2 annaðkvöld, mánudagskvöld, klukkan 19:10, fá áhorfendur að kynnast Boeing 747-þotunni. Þá verður áhöfn Air Atlanta á slíkri fraktþotu fylgt í hringferð um Afríku.
Air Atlanta Boeing Fréttir af flugi Sádi-Arabía Keflavíkurflugvöllur Flugþjóðin Tengdar fréttir Hreyflarnir hrikalegir á nýju Boeing 777-þotum Atlanta Flugfélagið Air Atlanta byggir nú upp farþegaflota sinn á ný eftir hrun í covid-faraldrinum og er þessa dagana að bæta við sig tveimur Boeing 777-breiðþotum til viðbótar við tvær sömu gerðar sem félagið fékk í fyrra. 18. júlí 2024 21:21 Atlanta með 600 manna flugútgerð í Sádí-Arabíu Pílagrímaflug Air Atlanta stendur nú sem hæst en flugfélagið er með sexhundruð manns að störfum í Sádí-Arabíu um þessar mundir við að flytja múslima sem þrá að sjá hina helgu borg Mekka. Verkefnin fyrir Saudia-flugfélagið eru þó mun víðtækari en þau eru kjölfestan í rekstri Atlanta. 11. júlí 2024 21:42 Stefnir í stærsta ár Air Atlanta með allt að tuttugu breiðþotur Flugfélagið Air Atlanta hefur fest kaup á fimm nýjum breiðþotum, meðal annars til að nota í umfangsmiklu pílagrímaflugi. Forstjórinn segir stefna í að árið verði það allra stærsta í sögu félagsins með allt að tuttugu risaþotur í rekstri. 11. apríl 2024 20:55 Íslenskt flugfélag fjórði stærsti flugrekandi júmbó-þotunnar Framleiðslu júmbó-risaþotunnar hefur nú verið hætt og hefur síðasta Boeing 747-þotan verið afhent frá verksmiðjunum. Í upprifjun erlendra fjölmiðla á yfir hálfrar aldar sögu hennar hefur komið fram að íslenskt flugfélag er í fjórða sæti yfir stærstu flugrekendur þessarar einstöku flugvélar. 14. febrúar 2023 21:03 Síðasta Boeing 747-þotan úr flugvélaverksmiðjunni Síðasta eintak júmbóþotunnar, eða Boeing 747, fór út úr samsetningarverksmiðju Boeing í borginni Everett norðan Seattle í Washington-ríki í gærkvöldi. Þetta er fraktvél af undirtegundinni 747-8 og verður afhent bandaríska vöruflutningafélaginu Atlas Air snemma á næsta ári. 7. desember 2022 16:20 Mest lesið Biður Jón afsökunar Innlent Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Innlent Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Erlent Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Erlent Vara við „perragleraugum“ Innlent Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Innlent Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Innlent Lögreglan skarst í leikinn á mótmælum í Kaupmannahöfn Erlent Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Innlent Fleiri fréttir Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Vara við „perragleraugum“ Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Bakar til góðs næsta sólarhringinn Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Skoða viðbrögð við rannsókn á Ölgerðinni Minna á útgáfu nafnskírteina vegna rannsóknar lögreglu Eldur í lyftara í álverinu í Straumvík Tveir reyndu að flýja lögreglu á fótum eftir eftirför „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Handtekinn fyrir að ausa fúkyrðum yfir hóp fólks Aðgengið gott en gefur ekki upp synjanirnar „Eigum ekki að bíða eftir alvarlegu atviki“ Jafnlaunavottunin afnumin en starfsfólkinu fækkar ekki Halla kjörin fyrsti varaforseti ASÍ Varar við að biðraðir í Keflavík geti fækkað flugleiðum Ekki ástæða til að rýma bankann Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað „Ég ætla ekki að fara í nein orðaskipti við Jón“ Sjö ára dómur Nýr forseti ASÍ, umdeildur sýknudómur og snjöll markaðsbrella Sjá meira
Hreyflarnir hrikalegir á nýju Boeing 777-þotum Atlanta Flugfélagið Air Atlanta byggir nú upp farþegaflota sinn á ný eftir hrun í covid-faraldrinum og er þessa dagana að bæta við sig tveimur Boeing 777-breiðþotum til viðbótar við tvær sömu gerðar sem félagið fékk í fyrra. 18. júlí 2024 21:21
Atlanta með 600 manna flugútgerð í Sádí-Arabíu Pílagrímaflug Air Atlanta stendur nú sem hæst en flugfélagið er með sexhundruð manns að störfum í Sádí-Arabíu um þessar mundir við að flytja múslima sem þrá að sjá hina helgu borg Mekka. Verkefnin fyrir Saudia-flugfélagið eru þó mun víðtækari en þau eru kjölfestan í rekstri Atlanta. 11. júlí 2024 21:42
Stefnir í stærsta ár Air Atlanta með allt að tuttugu breiðþotur Flugfélagið Air Atlanta hefur fest kaup á fimm nýjum breiðþotum, meðal annars til að nota í umfangsmiklu pílagrímaflugi. Forstjórinn segir stefna í að árið verði það allra stærsta í sögu félagsins með allt að tuttugu risaþotur í rekstri. 11. apríl 2024 20:55
Íslenskt flugfélag fjórði stærsti flugrekandi júmbó-þotunnar Framleiðslu júmbó-risaþotunnar hefur nú verið hætt og hefur síðasta Boeing 747-þotan verið afhent frá verksmiðjunum. Í upprifjun erlendra fjölmiðla á yfir hálfrar aldar sögu hennar hefur komið fram að íslenskt flugfélag er í fjórða sæti yfir stærstu flugrekendur þessarar einstöku flugvélar. 14. febrúar 2023 21:03
Síðasta Boeing 747-þotan úr flugvélaverksmiðjunni Síðasta eintak júmbóþotunnar, eða Boeing 747, fór út úr samsetningarverksmiðju Boeing í borginni Everett norðan Seattle í Washington-ríki í gærkvöldi. Þetta er fraktvél af undirtegundinni 747-8 og verður afhent bandaríska vöruflutningafélaginu Atlas Air snemma á næsta ári. 7. desember 2022 16:20