Innlent

Arnar Þór stofnar Lýðræðisflokkinn

Jón Ísak Ragnarsson skrifar
Arnar Þór Jónsson bauð sig fram til forseta í vor, og hlaut 5,1 prósent atkvæða.
Arnar Þór Jónsson bauð sig fram til forseta í vor, og hlaut 5,1 prósent atkvæða. Vísir

Arnar Þór Jónsson hæstaréttarlögmaður hefur stofnað nýjan stjórnmálaflokk, sem hefur fengið nafnið Lýðræðisflokkurinn - samtök um sjálfsákvörðunarrétt. Í tilkynningu segir að markmið hans sé að vinna gegn þróun í átt til ofstjórnar og óstjórnar.

Frá þessu er greint í fréttatilkynningu frá Arnari.

Þar segir meðal annars að óstjórn og ofstjórn sé að knésetja íslenskan almenning og íslensk fyrirtæki.

Þróunin sé í átt til miðstýrðrar alheimsstjórnar

„Mjög alvarleg staða blasir við, bæði hér og í nágrannalöndum okkar. Stjórnmálaflokkar hafa gengist sérhagsmunahópum á hönd, ríkisvald er í síauknum mæli afhent alþjóðlegum stofnunum. Smáríki tala eins og stórveldin fyrirskipa. Stjórnmálaþróunin virðist vera í átt til miðstýrðrar alheimsstjórnar, þar sem þjóðríkin afhenda fjármuni og vald til alþjóðlegra stofnana, samhliða því að tengslin rofna milli kjósenda og þeirra sem fara með valdið,“ segir í tilkynningunni.

Arnar segist hafa fundið mikinn stuðning víða um land þegar hann var í framboði til forseta. Framboðið hafi verið tilraun til að vekja Íslendinga til vitundar um þá öfugþróun sem sé að eiga sér stað í landsmálum. Innviðir séu við það að brotna, og sumir þeirra þegar brotnir.

„Lýðræðisflokkurinn snýst um að efla lýðræði, frelsi og sjálfákvörðunarrétt. Þessi nýju stjórnmálasamtök verða byggð á heiðarleika og þeim gildum sem best hafa reynst. Ég er tilbúinn að fara í þessa baráttu með öllu því hugrakka og velviljaða fólki sem vill heyja hana með mér af heilu hjarta, með réttsýni og visku að leiðarljósi, fyrir landið okkar, Ísland.“

Viðræður strönduðu við Miðflokkinn

Arnar Þór átti í viðræðum við Miðflokkinn sem fjöruðu út í vikunni. Þá sagði Arnar að snertifletir hafi verið víða, en hann hafi viljað ræða mögulegar breytingar á Miðflokknum. „Samningaviðræður ganga út á það að báðir taki þátt,“ sagði Arnar.

Arnar Þór var varaþingmaður Sjálfstæðisflokksins frá 2021 þangað til hann bauð sig fram til forseta og sagði sig úr flokknum, en þar áður starfaði hann sem héraðsdómari. Árið 2021 tók hann ákvörðun um að láta af störfum sem dómari, en hann sagði umhverfið hafa þrengt að hugsun sinni.

Nokkrum mánuðum áður hafði Arnar sagt sig úr Dómarafélagi Íslands vegna ágreinings um tjáningafrelsi dómara og efni siðareglna félagsins.


Tengdar fréttir

Umdeildur dómari vill dæma í miðju framboði

Arnar Þór Jónsson héraðsdómari vill starfa áfram sem dómari þrátt fyrir að vera þátttakandi í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins fyrir sæti á lista í þingkosningum í haust.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×