Skoðun

Bankar gegn þjóð

Bjarni Jónsson skrifar

Mörgum var brugðið þegar Arion banki tilkynnti að eigendur bankans hefðu ákveðið að hækka ávöxtunarkröfu sína og því yrði bankinn að hækka vexti íbúðalána, þrátt fyrir óbreytta stýrivexti. Með öðrum orðum, sækja meira fé í vasa viðskiptavina sinna. Sama gerði Íslandsbanki og nú Landsbankinn sem er í eigu þjóðarinnar.

Methagnaður stóru bankanna

Í fyrra skiluðu stóru bankarnir þrír 83,5 milljarða hagnaði, þeim mesta frá hruni sem voru að uppistöðu vaxtatekjur. Hagnaður Arion banka á árinu 2023 nam 25,7 milljörðum króna og var eigendum greiddur um þrettán milljarða króna arður. Í júní var hagnaður bankans vegna fyrri hluta ársins kominn í 9,9 milljarða.

Þjóð í greipum fákeppni á bankamarkaði

Á sama tíma berst þorri viðskiptavina bankans, sem hefur þar húsnæðislán, í bökkum vegna verðbólgu og hárra vaxta. Hjá mörgum losna samningar um óverðtryggð húsnæðislán um næstu mánaðarmót sem mun valda stökkbreytingu á afborgunum með tilheyrandi forsendubresti og greiðsluerfiðleikum. Margir til viðbótar munu verða neyddir í verðtryggð lán á afarkostum til að halda niðri greiðslubyrði og komast af. Þetta eru gríðarlega miklar hækkanir á skömmum tíma án réttlætingar. Á þjóð í greipum fákeppni á bankamarkaði. Nú væri gott að við ættum ennþá fleiri og öflugri sparisjóði, en stóru viðskiptabankarnir komust upp með að drepa þá flesta af sér og yfirtaka.

Banki í eigu þjóðarinnar

Arion banki steig fyrstur fram gegn viðskiptavinum sínum, næst kom Íslandsbanki sem enn er að hluta í eigu allra landsmanna. Að endingu kom að Landsbankanum, sem er í sameiginlegri eigu þjóðarinnar. Slóst þjóðin þannig í hóp þeirra eigenda bankanna sem hækka arðsemiskröfu sína og vexti til að hafa meira fé af fólki sem ekki getur leitað annað og sætir sameiginlegum afarkostum stóru bankanna. Þeir sem fara með hlut þjóðarinnar bera hér ábyrgð.

Þingnefnd rannsaki stóru viðskiptabankana

Þessar vaxtahækkanir hjá stóru bönkunum með litlu millibili vekja upp ýmsar spurningar og tímabært að þingið láti sig þetta varða. Hér þarf samkeppniseftirlitið einnig að stíga inn og efnahags- og viðskiptaráðherra. Þá þurfa stjórnvöld að hysja upp um sig við innleiðingu EES tilskipana um neytendavernd og fjármálaþjónustu, en á engu sviði er frammistaðan verri en þar.

Afarkostir

Þjóðin stendur frammi fyrir afarkostum og hefur ekkert annað að leita, þegar stóru bankarnir þrír, þar á meðal þeirra eigin banki, Landsbankinn, hækka vexti útlána á sama tíma án þess að aðstæður hafi breyst aðrar en að bankarnir vilji taka meira til sín og skila enn meiri hagnaði til eigenda sinna. Á sama tíma berst stór hluti lántakenda sem aldrei fyrr í bökkum að láta enda ná saman vegna stökkbreyttra hækkana afborgana húsnæðislána. Þessi framganga nú er ekki bara vafasöm heldur vart siðleg. Það er svo sérstaklega gagnrýnivert að banka í eigu þjóðarinnar skuli vera beitt með þessum hætti gegn eigendum sínu

Höfundur er Alþingismaður og formaður umhverfis- og samgöngunefndar Alþingis.




Skoðun

Skoðun

Þöggun

Guðbjörg Ása Jóns Huldudóttir,Margrét Kristín Blöndal,Margrét Rut Eddudóttir,Lukka Sigurðardóttir,Sigtryggur Ari Jóhannsson,Halldóra Jóhanna Hafsteins Âû skrifar

Sjá meira


×