Chelsea lagði Brighton & Hove Albion í ensku úrvalsdeild karla í knattspyrnu í fjörugum leik á Brúnni.
Fyrir leikinn höfðu Brighton ekki tapað leik og komust gestirnir yfir snemma leiks þökk sé marki Georginio Rutter eftir undirbúning Carlos Baleba. Heimamenn létu það ekki á sig fá og á 21. mínútu hafði Cole Palmer jafnað metin. Nicolas Jackson með stoðsendinguna.
Aðeins þremur mínútum síðar hafði Jadon Sancho komið knettinum í netið en markið dæmt af vegna rangstöðu. Ekki löngu síðar fékk heimaliðið vítaspyrnu, Palmer fór á punktinn og kom Chelsea yfir.
Þessi skemmtilegi leikmaður fullkomnaði svo þrennu sína þegar rétt rúmlega hálftími var liðinn og staðan orðin 3-1. Baleba minnkaði muninn í 3-2 aðeins þremur mínútum síðar en Palmer bætti fjórða marki sínu við eftir undirbúning Sancho á 41. mínútu og heimamenn 4-2 yfir í hálfleik.
Cole Palmer is the first player in Premier League history to score four goals before half-time in a single match.#CHEBHA | #CFC
— The Athletic | Football (@TheAthleticFC) September 28, 2024
[@OptaJoe] pic.twitter.com/61okT6KZRD
Síðari hálfleikurinn var ekki alveg sama flugeldasýningin en heimaliðið bætti þó við fimmta markinu á 69. mínútu. Það skoraði bakvörðurinn Marc Cucurella eftir undirbúning varamannsins Pedro Neto.Markið stóð þó ekki þar sem Cucurella var dæmdur rangstæður í aðdraganda þess.
Á endanum var ekkert skorað í síðari hálfleik og Chelsea vann 4-2 sigur sem þýðir að liðið er með 13 stig að loknum sex umferðum, aðeins stigi minna en topplið Manchester City og Arsenal. Brighton er í 8. sæti með níu stig.