Skerjafjarðarskjáldið krefst afsökunarbeiðni – annars fer það í mál Jakob Bjarnar skrifar 20. september 2024 10:02 Kristján telur sig hafa orðið fyrir óásættanlegri aðdróttun þegar Berglind greip til hendingar úr söngbók hans og notaði sem fyrirsögn á grein þar sem vindmyllur eru lofaðar. Kristján krefst afsökunarbeiðni og að hún breyti titli greinar sinnar. vísir/vilhelm Kristján Hreinsson skáld sem kenndur hefur verið við Skerjafjörðinn segir það gersamlega óásættanlegt að hending úr hans höfundarverki sé notuð sem einskonar slagorð fyrir vindmylluuppbyggingu.
Um er að ræða hendinguna „Dansaðu vindur“ sem er úr söngbók Kristjáns. Skáldinu er hreinlega misboðið og hann tjáir sig um það hversu misboðið honum er á Facebooksíðu sinni. Hann hótar málaferlum. „Ég sá í gær fullkomlega óviðeigandi aðdróttun að heiðri listamanns. Reyndar er þetta alvöru árás á höfundarétt. Þar er ég á hlut að máli, við ég að á mig verði hlustað.“ Glæpsamlegt að nota titil á einu þekktasta jólalaginu í lofgerð um vindmyllur Forsaga málsins er sú að Berglind Ósk Guðmundsdóttir, sem Kristján tekur skýrt fram að hann þekki ekki neitt og viti ekkert um, hafi þann 19. september á þessu ári ritað grein undir fyrirsögninni: Dansaðu vindur. Greinin fjallar um vindmyllur og einkavæðingu orkulinda. „Á Íslandi er eftirspurnin eftir raforku mikil. Það er jákvætt að atvinnulífið sé svo blómlegt að umframeftirspurn hafi myndast en neikvætt ef stjórnvöld ná ekki að tryggja að af framkvæmdum verði vegna seinagangs í uppbyggingu á raforkukerfinu.“ Kristjáni er hreinlega brugðið við lesturinn: „Að nota nafn á einu frægasta jólalagi til þess að opna fyrir að örfáir auðmenn eignist alla raforku á Íslandi, það er í mínum huga hreinlega glæpsamlegt.“ Svona gerir maður ekki Kristjáni hugnast ekki að þeir sem vilji að raforka verði einkavædd og vindorkum komið upp um víð og dreif á Íslandi undir slagorði sem sótt er í hans kveðskap sé óásættanlegt með öllu: „Þá munu kærumál fara af stað. Með því að nota titil frægs söngtexta í pólitískum tilgangi er vegið að sæmdarrétti.“ Og Kristján vitnar í Wikipedia þar sem segir um þennan hluta höfundarréttar: „Sæmdarréttur leiðir af þeirri hugmynd að verk höfundar sé framlenging á persónu hans. Sæmdarrétturinn er þannig oftast persónubundinn (aðeins höfundurinn sjálfur getur verið málsaðili) og óframseljanlegur, öfugt við hinn meginhluta höfundaréttar, fjárhagslegu réttindin.“ Kristján setur fram þá kröfu að Berglind Ósk biði sig opinberlega afsökunar og fjarlægi hendingu sína úr titli greinar sinnar. „Öllu sómakæru fólki ætti að skiljast að svona gerir maður ekki.“
Höfundarréttur Orkumál Mest lesið Fundu lík karlmanns í Reynisfjalli Innlent „Ég hefði bara sagt af mér á staðnum“ Innlent Fjórir í bílnum en enginn við stýrið Innlent Eiginmaður íslenskrar konu lét sig hverfa rétt eftir brúðkaupið Innlent Yazan afar létt að vera ekki vísað frá landi Innlent „Það er ódýrast og best og fljótlegast að kála þessum dýrum“ Innlent Skerjafjarðarskáldið krefst afsökunarbeiðni – annars fer það í mál Innlent Kona á níræðisaldri sá björninn í þriggja metra fjarlægð Innlent Frambjóðandi Trump lýsti sér sem „svörtum nasista“ á klámsíðu Erlent Íbúar Springfield klofnir í afstöðu sinni til heimsóknar Trump Erlent Fleiri fréttir Ákvörðun ráðherra viðurkenning á að mikil þekking sé fyrir norðan Biðin óásættanleg og vill skýr svör frá ríkinu Hinir grunuðu í mansalsmálinu ganga lausir Sveitarfélögin krefja ríkið svara um NPA Norðurlönd dýpka samvinnu í varnarmálum Eiginmaður íslenskrar konu lét sig hverfa rétt eftir brúðkaupið „Það er ódýrast og best og fljótlegast að kála þessum dýrum“ Bein útsending: Birting lýðheilsuvísa í Grindavík Skerjafjarðarskáldið krefst afsökunarbeiðni – annars fer það í mál Húnninn settur í frost þar til hægt verður að stoppa hann upp „Ég hefði bara sagt af mér á staðnum“ Yazan afar létt að vera ekki vísað frá landi Fjórir í bílnum en enginn við stýrið Fundu lík karlmanns í Reynisfjalli Sýknaður af ákæru um manndráp af gáleysi á Akureyri Ákærður fyrir að stinga lækni í kvöldgöngu „Kerfið er algjörlega að bregðast fólkinu“ Vinnuslys töluvert tíðari á Íslandi en í Noregi Áhyggjuefni að innri landamærin séu ekki betur tryggð Dæmi um að fólk hafi fallið frá á meðan beðið er eftir NPA-þjónustu Kona á níræðisaldri sá björninn í þriggja metra fjarlægð Brynjar vill herða upp á mannréttindahugtakinu Hvítabjörninn felldur: Forðaði sér inn og sendi skilaboð á dóttur sína Útilokar ekki að snúa sér að öðrum verkefnum Senda vopnaða menn á svæðið Tilkynnt um ísbjörn og þyrla gæslunnar ræst út Óska eftir myndefni af Krýsuvíkurvegi Rafrettukóngur og eigandi Drekans sakaðir um 740 milljóna brot Nafn mannsins sem lést í vinnuslysi í Árborg „Fatlaða fólkið verður fyrir miskanum“ Sjá meira