Kynntu dagskrá RIFF 2024 Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 19. september 2024 15:58 Hrönn Stefánsdóttir kynnti dagskrá RIFF í ár. Dagskrá kvikmyndahátíðarinnar RIFF í ár var kynnt á blaðamannafundi í Háskólabíói í morgun. Hrönn Marínósdóttir, stjórnandi RIFF, bauð gesti velkomna og talaði um sérstöðu og mikilvægi RIFF í íslensku samfélagi. Viðburðir og úrval mynda hefur sjaldan verið jafn mikið og á hátíðinni í ár sem hefst eftir viku þann 26. september og stendur yfir til 6. október. „Að koma saman í kvikmyndahúsum, horfa á bíómyndir frá öllum heimshornum og fá tækifæri til þess að setja sig í spor annarra elur á samkennd—eitthvað sem hefur ef til vill aldrei verið jafn mikilvægt og í dag,“ sagði Hrönn. Með henni voru Sigurður Unnar Birgisson, sem kynnti starfsemi UngRiff, og Sölvi Halldórsson, sem fór nánar út í það helsta á dagskrá hátíðarinnar. ,,Það er viðeigandi að lokamynd RIFF í ár, The Room Next Door eftir Pedro Almodóvar, hverfist um hið sígilda söguefni misskilninginn, af því kvikmyndir hjálpa okkur að skilja heiminn og fólkið í kringum okkur. Þegar við förum í bíó þjálfum við okkur í samlíðan og þess vegna eru kvikmyndir sannur og nauðsynlegur samfélagsmiðill.“ Met slegin í innsendingu mynda Að þessu sinni verða sýndar 82 kvikmyndir í fullri lengd auk 246 stuttmynda frá meira en sextíu löndum úr öllum heimsálfum. Fjöldi Norðurlandafrumsýninga er á RIFF, en sænskar myndir eru í fókus á hátíðinni í ár – og margar myndanna koma hingað frá virtustu hátíðum í heimi á borð við Cannes, Feneyjar, Toronto og Rotterdam þar sem þær hafa notið hylli og verið verðlaunaðar. Því er um að ræða einstakt tækifæri til að sjá bestu myndir ársins, en flestar myndanna verða ekki sýndar áfram í bíóhúsum hérlendis. Segir í tilkynningu frá skipuleggjendum að áhugi og þátttaka á RIFF hafi aldrei verið meiri en í ár. Nefna megi sem dæmi að met hafi verið slegið í innsendingu íslenskra stuttmynda, eða sem nemur hátt í hundrað verkum. Þá er úrval leikinna mynda í fullri lengd og heimildarmynda meira en nokkru sinni í 21. árs sögu hátíðarinnar sem fyrst var haldin í Reykjavík 2004. Hápunktarnir á RIFF í ár: Å kerlund, Cronenberg, Bong Joon-ho, Kinski, Moodysson, Tsangari Það glitrar á margar og litríkar perlur í þeim fjölda kvikmynda sem RIFF býður upp á í ár, stuttra og langra, leikinna og teiknaðra, svo og hinna sem eru byggðar á heimildum og rannsóknum eða bláköldum veruleikanum sem blasir við um jarðarkringluna alla. Hátíðin hefst í Hásk ó labíói 26. september og stendur til 6. okt ó ber. Opnunarmynd hátíðarinnar í ár er Elskuleg (n. Elskling) eftir íslensk-norska leikstjórann Lilju Ingólfsdóttur sem slegið hefur rækilega í gegn sem „egghvasst tilfinningadrama“ eins og tímaritið Variety segir, en myndin vann nýverið fimmfalt á Karlovy Vary hátíðinni í Tékklandi. Tíu dögum síðar er hátíðin römmuð inn með lokamyndinni The Room Next Door sem er nýjasta verk Spánverjans Pedro Almodovar með Óskarsverðlaunahöfunum Julianne Moore og Tony Swindon í aðalhlutverkum, en þetta er fyrsta „enskumælandi“mynd Almodovar. Þess á milli iðar Háskólabíó af lífi af jafnt glænýjum úrvalsmyndum og eldri klassík af öllu tagi. Það minnir á Veldi tilfinninganna sem RIFF sýnir í ár, bráðum hálfri öld frá frumsýningu hennar, en hún skók allan heiminn – og var víðast hvar bönnuð fyrir „helberan dónaskap,“ að sagt var í þá daga, hvað svo sem nútímanum kann að finnast á annarri öld. Það leiðir líka hugann að þunga hnífsins, en strákarnir í Sólstöfum munu reyna á veggi salar 1 í Háskólabíói, föstudagskvöldið 4. október þegar þeir halda þungarokkssýningu á Hrafninn flýgur í tilefni af 40 ára afmæli þessa íslenska spagettívestra Hrafns Gunnlaugssonar. Fjöldi heimskunnra leikstjóra setur svip sinn á RIFF, en meðal heiðursgesta hennar er suður-kóreski leikstjórinn Bong Joon-ho sem vann þrenn Óskarsverðlaun fyrir mynd sína Parasite frá 2019, en verk hans The Host og Mother! verða sýndar á RIFF í ár. Hann ávarpar hátíðina. Annar heimskunnur leikstjóri og heiðursgestur RIFF í ár er Svíinn JonasÅkerlund, sem vinnurmeðal annarsmyndbönd fyrir kunnustu poppstjörnur heims, en nýjasta verk hans,dansmyndin DuEls kviknar á tjaldi Háskólabíós, samin af íslenska danshöfundinum Ernu Ómarsdóttur. Báðir munu Bong Joon-ho og JonasÅkerlund ræða við áhorfendur í sal, rétt eins og þriðji heiðursgestur RIFF í ár, gríska kvikmyndagerðarkonan Athina Tsangari, en fáir leikstjórar hafa aflað sér jafn mikillar virðingar og hún hefur gert á síðustu árum fyrir magnaðar myndir. Sem leiðir hugann að kattliðugri leikkonu að nafni Nastassja Kinski, sem einnig verður heiðruð á hátíðinni í ár, en í tilefni af komu hennar til Íslands verða sýndar tvær af kunnustu myndum hennar, Cat People eftir Paul Schrader og Paris, Texas úr smiðju Wim Wenders. Og það vantar ekki frægðarmennin í leikstjórastólnum sem eiga myndir á RIFF í ár, en sjálfur David Cronenberg tjaldar líkklæðum í splunkunýrri filmu sinni, The Shrouds, já byrjið að skjálfa. Og ekki óþekktari stjóri er Lucas Moodysson sem leiðir Svíþjóð í fókus á hátíðinni í ár, sem býður einmitt upp á það besta og ferskasta úr sænskri kvikmyndagerð, þar á meðal nýjustu mynd kappans, Together 99 sem The Guardian segir hann hafa leikstýrt í samfelldu hláturskasti! Fjöldi íslenskra og erlendra stuttmynda setur sterkan svip sinn á RIFF í ár og þá ekki síður vandaðar heimildarmyndir sem fanga samtímann, hvort heldur þær varða menningu og listir, loftslagsvána eða málefni flóttafólks og innflytjenda. Má þar nefna sem dæmi Chain Reactions - heimildarmyndina sem var að vinna Gullna ljónið á Venice Film Festival og verður sýnd beint á eftir sjálfri Texas Chain Saw Massacre. Loks er vert að nefna Bransadaga RIFF þar sem kvikmyndagerðarfólk fær tækifæri til að hitta hvert annað og ræða fagið, til dæmis hvað gervigreindin muni gera fyrir greinina á komandi árum og hvaða breytingum markaðssetning muni taka á tímum streymisveitna og nýrra miðla. Bíó og sjónvarp RIFF Mest lesið Landaði hlutverki í íslensku Hallmark-myndinni á hálftíma Bíó og sjónvarp Frægir fjölguðu sér árið 2024 Lífið Garðar málari og kvæntur yngstu ömmu landsins Lífið Krakkatían: Jólasveinar, stjörnustríð og þjóðsögur Lífið Blaðasnápurinn Stefán Einar fórnar kampavínskóngstitlinum Lífið Fékk Sigurbjörn Árna til að lýsa óhappi í vinnunni Lífið Að velja rangan maka: „Við gerum oft svo lítið úr ástarmálunum“ Áskorun Innlit á æfingu Jólagesta: „Allt þarf að taka endi“ Tónlist Hlaupársdagurinn þegar Ölfusá flæddi inn í Selfossbæ Lífið Fékk bónorð í jólagjöf á tónleikum Paul McCartney Lífið Fleiri fréttir Landaði hlutverki í íslensku Hallmark-myndinni á hálftíma Frumsýning á Vísi: Fyrsta stiklan úr hryllingstrylli af Vestfjörðum Paul Mescal leiki nafna sinn McCartney „Þannig það yrði bara til Leynilögga 1 og 3“ Emilia Pérez og The Bear með flestar tilnefningar til Golden Globe „Hversu góð tök hefur þú á Rúrik?“ Barry Keoghan leikur Bítil Með stórstjörnum í væntanlegri kvikmynd Marvel Leikstjóri Naked Gun og Airplane! látinn „Grét ekkert eðlilega mikið á frumsýningunni“ Frumsýning á Vísi: Steindi og Saga með nýja sketsaseríu um jólin Sjáðu Nínu Dögg sem Vigdísi í fyrstu stiklunni Stjörnufans þegar hundruð kíktu á forsýningu Iceguys 2 Sýn, Síminn og RÚV standa að baki nýjum sjónvarpsverðlaunum Halda til Spánar að smakka messuvín fyrir þjóðkirkjuna Hundrað ára viðkvæmni Íslendinga: „Leið daglega yfir 40 til 50 manns“ Stórstjörnur flykkjast í verkefni Baltasars Ljósbrot verðlaunuð af Evrópsku kvikmyndaakademíunni Stórstjarna úr tónlistarheiminum í nýrri seríu White Lotus Brynjar Morthens leikur Bubba Morthens Frumsýning á Vísi: IceGuys dæmdir til samfélagsþjónustu í seríu tvö Sjá meira
„Að koma saman í kvikmyndahúsum, horfa á bíómyndir frá öllum heimshornum og fá tækifæri til þess að setja sig í spor annarra elur á samkennd—eitthvað sem hefur ef til vill aldrei verið jafn mikilvægt og í dag,“ sagði Hrönn. Með henni voru Sigurður Unnar Birgisson, sem kynnti starfsemi UngRiff, og Sölvi Halldórsson, sem fór nánar út í það helsta á dagskrá hátíðarinnar. ,,Það er viðeigandi að lokamynd RIFF í ár, The Room Next Door eftir Pedro Almodóvar, hverfist um hið sígilda söguefni misskilninginn, af því kvikmyndir hjálpa okkur að skilja heiminn og fólkið í kringum okkur. Þegar við förum í bíó þjálfum við okkur í samlíðan og þess vegna eru kvikmyndir sannur og nauðsynlegur samfélagsmiðill.“ Met slegin í innsendingu mynda Að þessu sinni verða sýndar 82 kvikmyndir í fullri lengd auk 246 stuttmynda frá meira en sextíu löndum úr öllum heimsálfum. Fjöldi Norðurlandafrumsýninga er á RIFF, en sænskar myndir eru í fókus á hátíðinni í ár – og margar myndanna koma hingað frá virtustu hátíðum í heimi á borð við Cannes, Feneyjar, Toronto og Rotterdam þar sem þær hafa notið hylli og verið verðlaunaðar. Því er um að ræða einstakt tækifæri til að sjá bestu myndir ársins, en flestar myndanna verða ekki sýndar áfram í bíóhúsum hérlendis. Segir í tilkynningu frá skipuleggjendum að áhugi og þátttaka á RIFF hafi aldrei verið meiri en í ár. Nefna megi sem dæmi að met hafi verið slegið í innsendingu íslenskra stuttmynda, eða sem nemur hátt í hundrað verkum. Þá er úrval leikinna mynda í fullri lengd og heimildarmynda meira en nokkru sinni í 21. árs sögu hátíðarinnar sem fyrst var haldin í Reykjavík 2004. Hápunktarnir á RIFF í ár: Å kerlund, Cronenberg, Bong Joon-ho, Kinski, Moodysson, Tsangari Það glitrar á margar og litríkar perlur í þeim fjölda kvikmynda sem RIFF býður upp á í ár, stuttra og langra, leikinna og teiknaðra, svo og hinna sem eru byggðar á heimildum og rannsóknum eða bláköldum veruleikanum sem blasir við um jarðarkringluna alla. Hátíðin hefst í Hásk ó labíói 26. september og stendur til 6. okt ó ber. Opnunarmynd hátíðarinnar í ár er Elskuleg (n. Elskling) eftir íslensk-norska leikstjórann Lilju Ingólfsdóttur sem slegið hefur rækilega í gegn sem „egghvasst tilfinningadrama“ eins og tímaritið Variety segir, en myndin vann nýverið fimmfalt á Karlovy Vary hátíðinni í Tékklandi. Tíu dögum síðar er hátíðin römmuð inn með lokamyndinni The Room Next Door sem er nýjasta verk Spánverjans Pedro Almodovar með Óskarsverðlaunahöfunum Julianne Moore og Tony Swindon í aðalhlutverkum, en þetta er fyrsta „enskumælandi“mynd Almodovar. Þess á milli iðar Háskólabíó af lífi af jafnt glænýjum úrvalsmyndum og eldri klassík af öllu tagi. Það minnir á Veldi tilfinninganna sem RIFF sýnir í ár, bráðum hálfri öld frá frumsýningu hennar, en hún skók allan heiminn – og var víðast hvar bönnuð fyrir „helberan dónaskap,“ að sagt var í þá daga, hvað svo sem nútímanum kann að finnast á annarri öld. Það leiðir líka hugann að þunga hnífsins, en strákarnir í Sólstöfum munu reyna á veggi salar 1 í Háskólabíói, föstudagskvöldið 4. október þegar þeir halda þungarokkssýningu á Hrafninn flýgur í tilefni af 40 ára afmæli þessa íslenska spagettívestra Hrafns Gunnlaugssonar. Fjöldi heimskunnra leikstjóra setur svip sinn á RIFF, en meðal heiðursgesta hennar er suður-kóreski leikstjórinn Bong Joon-ho sem vann þrenn Óskarsverðlaun fyrir mynd sína Parasite frá 2019, en verk hans The Host og Mother! verða sýndar á RIFF í ár. Hann ávarpar hátíðina. Annar heimskunnur leikstjóri og heiðursgestur RIFF í ár er Svíinn JonasÅkerlund, sem vinnurmeðal annarsmyndbönd fyrir kunnustu poppstjörnur heims, en nýjasta verk hans,dansmyndin DuEls kviknar á tjaldi Háskólabíós, samin af íslenska danshöfundinum Ernu Ómarsdóttur. Báðir munu Bong Joon-ho og JonasÅkerlund ræða við áhorfendur í sal, rétt eins og þriðji heiðursgestur RIFF í ár, gríska kvikmyndagerðarkonan Athina Tsangari, en fáir leikstjórar hafa aflað sér jafn mikillar virðingar og hún hefur gert á síðustu árum fyrir magnaðar myndir. Sem leiðir hugann að kattliðugri leikkonu að nafni Nastassja Kinski, sem einnig verður heiðruð á hátíðinni í ár, en í tilefni af komu hennar til Íslands verða sýndar tvær af kunnustu myndum hennar, Cat People eftir Paul Schrader og Paris, Texas úr smiðju Wim Wenders. Og það vantar ekki frægðarmennin í leikstjórastólnum sem eiga myndir á RIFF í ár, en sjálfur David Cronenberg tjaldar líkklæðum í splunkunýrri filmu sinni, The Shrouds, já byrjið að skjálfa. Og ekki óþekktari stjóri er Lucas Moodysson sem leiðir Svíþjóð í fókus á hátíðinni í ár, sem býður einmitt upp á það besta og ferskasta úr sænskri kvikmyndagerð, þar á meðal nýjustu mynd kappans, Together 99 sem The Guardian segir hann hafa leikstýrt í samfelldu hláturskasti! Fjöldi íslenskra og erlendra stuttmynda setur sterkan svip sinn á RIFF í ár og þá ekki síður vandaðar heimildarmyndir sem fanga samtímann, hvort heldur þær varða menningu og listir, loftslagsvána eða málefni flóttafólks og innflytjenda. Má þar nefna sem dæmi Chain Reactions - heimildarmyndina sem var að vinna Gullna ljónið á Venice Film Festival og verður sýnd beint á eftir sjálfri Texas Chain Saw Massacre. Loks er vert að nefna Bransadaga RIFF þar sem kvikmyndagerðarfólk fær tækifæri til að hitta hvert annað og ræða fagið, til dæmis hvað gervigreindin muni gera fyrir greinina á komandi árum og hvaða breytingum markaðssetning muni taka á tímum streymisveitna og nýrra miðla.
Å kerlund, Cronenberg, Bong Joon-ho, Kinski, Moodysson, Tsangari Það glitrar á margar og litríkar perlur í þeim fjölda kvikmynda sem RIFF býður upp á í ár, stuttra og langra, leikinna og teiknaðra, svo og hinna sem eru byggðar á heimildum og rannsóknum eða bláköldum veruleikanum sem blasir við um jarðarkringluna alla. Hátíðin hefst í Hásk ó labíói 26. september og stendur til 6. okt ó ber. Opnunarmynd hátíðarinnar í ár er Elskuleg (n. Elskling) eftir íslensk-norska leikstjórann Lilju Ingólfsdóttur sem slegið hefur rækilega í gegn sem „egghvasst tilfinningadrama“ eins og tímaritið Variety segir, en myndin vann nýverið fimmfalt á Karlovy Vary hátíðinni í Tékklandi. Tíu dögum síðar er hátíðin römmuð inn með lokamyndinni The Room Next Door sem er nýjasta verk Spánverjans Pedro Almodovar með Óskarsverðlaunahöfunum Julianne Moore og Tony Swindon í aðalhlutverkum, en þetta er fyrsta „enskumælandi“mynd Almodovar. Þess á milli iðar Háskólabíó af lífi af jafnt glænýjum úrvalsmyndum og eldri klassík af öllu tagi. Það minnir á Veldi tilfinninganna sem RIFF sýnir í ár, bráðum hálfri öld frá frumsýningu hennar, en hún skók allan heiminn – og var víðast hvar bönnuð fyrir „helberan dónaskap,“ að sagt var í þá daga, hvað svo sem nútímanum kann að finnast á annarri öld. Það leiðir líka hugann að þunga hnífsins, en strákarnir í Sólstöfum munu reyna á veggi salar 1 í Háskólabíói, föstudagskvöldið 4. október þegar þeir halda þungarokkssýningu á Hrafninn flýgur í tilefni af 40 ára afmæli þessa íslenska spagettívestra Hrafns Gunnlaugssonar. Fjöldi heimskunnra leikstjóra setur svip sinn á RIFF, en meðal heiðursgesta hennar er suður-kóreski leikstjórinn Bong Joon-ho sem vann þrenn Óskarsverðlaun fyrir mynd sína Parasite frá 2019, en verk hans The Host og Mother! verða sýndar á RIFF í ár. Hann ávarpar hátíðina. Annar heimskunnur leikstjóri og heiðursgestur RIFF í ár er Svíinn JonasÅkerlund, sem vinnurmeðal annarsmyndbönd fyrir kunnustu poppstjörnur heims, en nýjasta verk hans,dansmyndin DuEls kviknar á tjaldi Háskólabíós, samin af íslenska danshöfundinum Ernu Ómarsdóttur. Báðir munu Bong Joon-ho og JonasÅkerlund ræða við áhorfendur í sal, rétt eins og þriðji heiðursgestur RIFF í ár, gríska kvikmyndagerðarkonan Athina Tsangari, en fáir leikstjórar hafa aflað sér jafn mikillar virðingar og hún hefur gert á síðustu árum fyrir magnaðar myndir. Sem leiðir hugann að kattliðugri leikkonu að nafni Nastassja Kinski, sem einnig verður heiðruð á hátíðinni í ár, en í tilefni af komu hennar til Íslands verða sýndar tvær af kunnustu myndum hennar, Cat People eftir Paul Schrader og Paris, Texas úr smiðju Wim Wenders. Og það vantar ekki frægðarmennin í leikstjórastólnum sem eiga myndir á RIFF í ár, en sjálfur David Cronenberg tjaldar líkklæðum í splunkunýrri filmu sinni, The Shrouds, já byrjið að skjálfa. Og ekki óþekktari stjóri er Lucas Moodysson sem leiðir Svíþjóð í fókus á hátíðinni í ár, sem býður einmitt upp á það besta og ferskasta úr sænskri kvikmyndagerð, þar á meðal nýjustu mynd kappans, Together 99 sem The Guardian segir hann hafa leikstýrt í samfelldu hláturskasti! Fjöldi íslenskra og erlendra stuttmynda setur sterkan svip sinn á RIFF í ár og þá ekki síður vandaðar heimildarmyndir sem fanga samtímann, hvort heldur þær varða menningu og listir, loftslagsvána eða málefni flóttafólks og innflytjenda. Má þar nefna sem dæmi Chain Reactions - heimildarmyndina sem var að vinna Gullna ljónið á Venice Film Festival og verður sýnd beint á eftir sjálfri Texas Chain Saw Massacre. Loks er vert að nefna Bransadaga RIFF þar sem kvikmyndagerðarfólk fær tækifæri til að hitta hvert annað og ræða fagið, til dæmis hvað gervigreindin muni gera fyrir greinina á komandi árum og hvaða breytingum markaðssetning muni taka á tímum streymisveitna og nýrra miðla.
Bíó og sjónvarp RIFF Mest lesið Landaði hlutverki í íslensku Hallmark-myndinni á hálftíma Bíó og sjónvarp Frægir fjölguðu sér árið 2024 Lífið Garðar málari og kvæntur yngstu ömmu landsins Lífið Krakkatían: Jólasveinar, stjörnustríð og þjóðsögur Lífið Blaðasnápurinn Stefán Einar fórnar kampavínskóngstitlinum Lífið Fékk Sigurbjörn Árna til að lýsa óhappi í vinnunni Lífið Að velja rangan maka: „Við gerum oft svo lítið úr ástarmálunum“ Áskorun Innlit á æfingu Jólagesta: „Allt þarf að taka endi“ Tónlist Hlaupársdagurinn þegar Ölfusá flæddi inn í Selfossbæ Lífið Fékk bónorð í jólagjöf á tónleikum Paul McCartney Lífið Fleiri fréttir Landaði hlutverki í íslensku Hallmark-myndinni á hálftíma Frumsýning á Vísi: Fyrsta stiklan úr hryllingstrylli af Vestfjörðum Paul Mescal leiki nafna sinn McCartney „Þannig það yrði bara til Leynilögga 1 og 3“ Emilia Pérez og The Bear með flestar tilnefningar til Golden Globe „Hversu góð tök hefur þú á Rúrik?“ Barry Keoghan leikur Bítil Með stórstjörnum í væntanlegri kvikmynd Marvel Leikstjóri Naked Gun og Airplane! látinn „Grét ekkert eðlilega mikið á frumsýningunni“ Frumsýning á Vísi: Steindi og Saga með nýja sketsaseríu um jólin Sjáðu Nínu Dögg sem Vigdísi í fyrstu stiklunni Stjörnufans þegar hundruð kíktu á forsýningu Iceguys 2 Sýn, Síminn og RÚV standa að baki nýjum sjónvarpsverðlaunum Halda til Spánar að smakka messuvín fyrir þjóðkirkjuna Hundrað ára viðkvæmni Íslendinga: „Leið daglega yfir 40 til 50 manns“ Stórstjörnur flykkjast í verkefni Baltasars Ljósbrot verðlaunuð af Evrópsku kvikmyndaakademíunni Stórstjarna úr tónlistarheiminum í nýrri seríu White Lotus Brynjar Morthens leikur Bubba Morthens Frumsýning á Vísi: IceGuys dæmdir til samfélagsþjónustu í seríu tvö Sjá meira